...að senda þeim ekki jólakort.
Jú víst .
Knúsar vin sinn hlewagastiR í bak og fyrir á karlmannlegan hátt
Hverjir eru þessir vinir og hver er Geir Ólafsson ?
Hvar kemur þessi Geir inn í myndina?
Hverjir eru þessir vinir og hver er Geir Ólafsson ?
Íslendingar sendu víst sönnum vinum sínum, Færeyingum, vírus (Geir Ólafs að syngja jólalag á færeysku) í jólagjöf.
íslendingar eru drullusokkar.
Ég hef ekki heyrt mikið eftir Geir Ólafsson, en ef hann er eitthvað líkur nafna sínum forsætisráðherra, var þetta mikill bjarnargreiði.
Ég hef ekki heyrt mikið eftir Geir Ólafsson, en ef hann er eitthvað líkur nafna sínum forsætisráðherra, var þetta mikill bjarnargreiði.
Var sá ekki Hallgrímsson?
Mér finnst þetta í hæsta máta ósmekklegt grín og ekki eiga heima hér á síðum Gestapósins. Að hæða nafnkunna einstaklinga er lákúruleg og heimskuleg aðferð til að upphefja sjálfan sig og ekki góðum Bagglýtingum samboðin. Sérstaklega varð ég undrandi og hneykslaður að sjá að hlewagastiR skildi vera upphafsmaður að þessum ósóma. Ég sem hélt að greindarvísitala hans væri eitthvað yfir skóstærð... Er það kannski svona sem að hann æfir HUGArleikfimi...
Reyndar hef ég heyrt að jólakortin hafi verið uppselt í Eymundsson en það er engin afsökun því að þau má enn kaupa hjá fjölda góðgerðarfélaga og svo auðvitað í Bókaversluninni Úlfarsfelli vestur í bæ.
Þetta er óneitanlega nokkuð góð aðferð hjá þér til að klóra yfir skítinn þinn. En samt eitthvað svo misheppnuð... Því að allir sem mættu á árshátíðina síðustu, vita að ég er ekki Geir Ólafs. Svo skammastu þín bara og hættu að láta eins og asni. Það er nóg af alvöru ösnum allt í kringum okkur sem er það meðfætt að hegða sér eins eðlið og gáfnafar býður þeim. Það er því algjörlega ónauðsylegt að þú reynir að hegða þér þannig líka...
Hvað voðalega ertu trekktur, Huxi minn. Þú sem ert venjulega í svo góðu skapi. Nú held ég bara að ég knúsi þig.
Knúsar Huxa.
Ég er ekkert trekktur Hlebbi minn. Ég hef alltaf haft það fyrir reglu hérna að mæla gegn svona lágkúru og mun halda því áfram svo lengi sem einhver glæpist til að fara að níða skóinn (eða fótinn) af einhverjum sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér. Þá skiptir engu máli hvort til umfjöllunar eru Davíð Oddson eða Steingrímur J. Hvort þarna er verið að rappa yfir Hörð Torfa eða Bjarna Ármanns. Það á einfaldlega ekki heima hérna að vera með svona smásálarlegt skítkast. Ég mun þó áskilja mér ákveðinn rétt til að tala illa um tónlist Tom Waits... Það eru alveg hræðileg hljóð...
Knúsar Hlebba... á mjög karlmannlegann hátt þó
Svona nú, Huxi minn, þú hefur alveg misskilið inntakið í þessu en það gerir ekkert til. Grundvallarhugmyndin hjá þér er góð (þó að þú iðkir hana ekki gagnvart mér). Komdu nú og kysstu pabba.
Ok. Ég get viðurkennt að brandarinn var alveg ágætur svona út af fyrir sig. En ekki samt stunda þetta því að þá verð ég erfiðari við þig heldur en GEH þegar einhver er að tala ílla um surtana. Og ég kyssi þig ekki Hlebbi frístundakóngur. ALDREI
Riksar í burtu með hofmóðugan svip
Ég hef ekki heyrt mikið eftir Geir Ólafsson, en ef hann er eitthvað líkur nafna sínum forsætisráðherra, var þetta mikill bjarnargreiði.
Var sá ekki Hallgrímsson?
Nei, ég var að tala um Haarde.
Gerfikóngurinn er búinn að breyta upphafinnleggi sínu á þessum þræði.
SÖGUFÖLSUN !!!
RITSKOÐUN!!!
Þetta er valdníðsla og ekkert annað... Beita ílla fengnu embættinu svona fyrir sig. Fuss og svei.
Skellir hurðum við burtgöngu af þræðinum, helíllur...
Veltist um gólfið, emjandi af hlátri