Mætir seint og um síðir, í kafrifnu jakkafötum og hélaður í andliti
Sæll elsku kallinn minn og til hamingju og þú líka Ragnar... er ekki eldstæði hérna einhvers staðar... Skelfur og fær sér sopa úr mysubrúsa... líður strax betur
Mætir
Fer í sundföt
Gerir „fallbyssukúluna“ og stekkur út í laugina
Kemur sérstaklega frá Ástrallalíu til þess að vera viðstaddur á þessum merkisdegi
Innilegar hamingjuóskir! xTxT
Hér er enginn seinn, nema bara veizlan sjálf. Við ætlum að skemmta okkur saman og njóta matar og drykkja eins lengi og við endumst. Svo mega allir gista sem vilja. Í Vatnehúsi er alltaf nóg pláss.Ljómar upp
Gaman að sjá hvað bætir í. Blessaður syntu eins og þig lystir, Línbegur. Seztu hérna við arininn, Skabbi minn.
Kemur upp úr lauginni og fær sér veitingar
Gefst upp á dansinum í bili og sest hjá Sundlaugi
Þú berð bara aldurinn vel, svei mér þá!
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið Já, finnst þér það... takk.
Vá, hvað það er gaman að fá að halda rammælisveislu með þér, Laugi. Það er bara svaka stuð á liðinu.
Já, maður lifandi. Fólk kemur meira að segja alla leið frá Ástralíu til að famsagna... safmagna... ég meina samfagna okkur fær sér aðeins meira af mysunni hans Ragnars... þessari fölgulu. Désk... er'ðetta góð mysa, Ragnar. Svakalega líður mér samt einkennilega... svona þægilega einkennilega.
Drífur Sunda með sér í dans
Tekur þétt utan um Hexiu og svífur með hana yfir gólfið meðan "You're Just too Good to be True" ómar á grammafóninum.
Þakkar fyrir að Sundi hefur takið þétt, því annars myndu lappirnar ekki bera súg
Sýpur á kakói og smjattar á piparkökum
Sest hjá Skabba og býður honum að súpa af vasapela Hérna, Skabbi minn, fáðu þér nú alvöru norskt Linje-akvavit. Það er sko ekta drykkur og ætti að koma hlýju í kroppinn á þér. Varstu annars búinn að heyra nýjustu vísuna hans Lauga, sem hann samdi í tilefni af kreppunni, sem ætlar allt að æra í höfuðstaðnum?
Á Ýsufirði er engin kreppa
allir vilja þangað skreppa.
Það er nóg að bíta og brenna,
þar börnum sund ég er að kenna.
Heyrðu, Ragnar, mér sýnist Skabbi vera sveinstofnaður... beinþornaður... ég meina steinsofnaður þarna við arininn... og reyndar allir aðrir sofnaðir líka. Ég held ég fái mér sundsprett og fari svo sjálfur að sofa. Takk fyrir í dag slagar eilítið þegar hann gengur niður að lauginni, ósköp ánægður með rafmælið sitt.
Takk i lige måde, Laugi minn. Ég held ég fleygi mér bara hérna líka. Ég nenni ekki að arka heim núna. Góða nótt.
Laumar kútum á upphandleggina á Sundlaugi
Talar mjög rólega og sannfærandi við Sundlaug
Held það veiti ekkert af, Hexía er nefnilega farin að halla svolítið í vestur og þetta hjálpar henni.
Stígur upp úr lauginni eftir góðan sprett, lítur á upphandlegginna á sér og klórar sér í höbbðinu Hva, er ég kominn með svona mikla vövvþa... vuððva.. ég meina vöðva? Ekki skrítið þó sundið væri léttGlottir eins og fífl fer í snögga sturtu og arkar heim. Fær sér sopa af mysunni hans Ragnars... þessari rauðu Désk... góð mysa hjá honum Ragnari. Með hverju ætli hann fóðri nautgripina? Fleygir sér í næstu koju og steinsofnar.