Nú eru níutíu ár liðin síðan Íslendingar eignuðust sjálfstætt ríki. Óskum vér þeim til hamingju með það. Nú eiga þeir einungis eftir tvö hundruð sjötíu og tvö, til þess að jafna árangur sinn af þjóðveldistímanum.
Piff, Ísland var alltaf norskt hérað.
Nú er freistandi að karpa um muninn á sjálfstæði og fullveldi - en ég bara nenni því ekki.
Hvaða sjálfstæða ríki eignuðust Íslendingar?
Nú er freistandi að karpa um muninn á sjálfstæði og fullveldi - en ég bara nenni því ekki.
Ef vér höfum skilið rétt, þá varð Ísland á þeim tíma frjálst og fullvalda ríki með sama konung og Danmörk. Öll önnur mál en þjóðhöfðinginn voru aðskilin. Vér lítum á ríki svo sem Kanada, Ástralíu og Nýja Sjáland sem sjálfstæð frá Bretum, þó Beta sé þar þjóðhöfðingi. Hið sama gilti á Íslandi.
Regína, Ísland var sjálfstætt í nokkurn tíma, áður en Baggalútía tók þar yfir.
Danir sáu um utanríkismál og landhelgisgæslu fyrir Íslendinga þar til nasistar hertóku Danmörku.
Rétt er það, að Baunar sáu um utanríkisþjónustuna; Íslendingar nenntu eigi að sinna henni sjálfir. En hvað gæzluna varðar, þá höfðu Danir hér eitt skip, og var það hvergi nærri nóg. Því bœttu Íslendingar fljótt við öðrum.
Ég get að vísu ekki lofað því að ég lifi 272 ár til viðbótar en ég skal sko fjandakornið lofa ykkur því að við munum ekki tapa fullveldinu og sjálfstæðinu meðan ég dreg andann! Lemur veðruðum hnefanum af tilfinningu í borðið svo það skrikar til