Þú veist að þér er illa við væmni þegar þú færð kjánahroll við það eitt að lesa orðið væmni.
Þjer vitið að þjer hafið eigi verið nógu mikið á Gestapó þegar þjer uppgötvið að þráður á borð við þennan hefur lengst um u.þ.b. 50% síðan þjer lituð á hann síðast Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið.
Þú gerir þér grein fyrir því að þú lifir ótrulega leiðinlegu lífi þegar þig hlakkar óskaplega til að fara í íslenskufyrirlestur með 90 glærum.
Þú gerir þér grein fyrir því að þú lifir ótrulega leiðinlegu lífi þegar þig hlakkar óskaplega til að fara í íslenskufyrirlestur með 90 glærum.
Vonandi lærðir þú eitthvað gagnlegt! Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er

Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Annars veistu að þú ert Gestapói þegar þú sérð nafnið 'Vatnar' á prenti í raunheimum og flissar smá inní þér!
Þú veist að þú ert með frábæran efnafræðikennara þegar eftirfarandi spurning er í verkefnaheftinu sem hann skrifaði.
"Efnahvarf við karboxylsýru er oftast dæmi um...
a) kjarnsækið viðbótarhvarf
b) kjarnsækið skiptihvarf
c) rafsækið fráhvarf
d) rafsækið viðbótarhvarf
e) róttæklingahvarf
f) dularfullt mannshvarf"
Þú veist að þú veist ekkert um efnafræði þegar f. er eina svarið sem þú skilur eitthvað í, í dæminu hennar Furðu...
Það hefði verið betra að segja, "Þú veist að Furða veit meira en þú um efnafræði þegar etc etc..."
Þú veist að þú hefur furðulegar langanir þegar rafsækið viðbótarhvarf perrar þig.
Þú veist að þú hefur lært of mikið við tölvuna þegar þér er orðið illt í bakninu og öxlunum...
Þú veist að þú þarft á nuddi að halda þegar þér er orðið illt í bakinu og öxlunum...
Þú veist að þér er illt í baki og öxlum þegar þú vaknar og vildir óska þess að þetta væri bara þursabit.
Þú veist að þú gætir átt við þunglyndi að stríða ef fyrstu orðin sem þú segir þegar þú vaknar eru "Æ fokk".
Þú veist að fyrirtækið sem þú vannst hjá í 40 ár er algert skítafyrirtæki þegar þú hættir að vinna og sest í helgan stein og í staðinn fyrir gullúr frá fyrirtækinu, hringir starfsmannastjórinn í þig tvisvar í mánuði og segir þér hvað klukkan er.
Þú gerir þér grein fyrir því að þú lifir ótrulega leiðinlegu lífi þegar þig hlakkar óskaplega til að fara í íslenskufyrirlestur með 90 glærum.
Vonandi lærðir þú eitthvað gagnlegt! Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Já ég lærði greinilega ekki alveg nógu vel í þessum tíma, enda þessi regla á glæru númer 79. Glottir eins og fífl
79 er prímtala! Ljómar upp
Þegar á Gestapó birtist innlegg þar sem minnst er á prímtölur vitið þjer nánast 100% hver höfundur þess innleggs er án þess að sjá nafnið Glottir eins og fífl.
Þú veist að innleggið sem þú varst að lesa er fyndið þegar þú hlærð upphátt.