Ég þarf ekkert að skammast mín þótt ég eigi ekki glænýjan Benz.
Það minnir mig á eitt Offari..bílarnir sem þú auglýstir í bundnu máli í sumar...náðirðu að selja þá? Ef ég má spyrja.
Nei en ef Forsetinn fer að tilmælum mínum mun ég eflaust losna við stóru bílana.
Skaupið verður vonandi fyndnara fyrir vikið.
Spaugstofan hefur gengið í endurnýjun lífdaga og hefur blátt áfram verið fyndin á köflum!
Maður getur verið stoltur af því að aka um á smábíl.
Það er úr nógu að moða fyrir áramótaskaupið. Það verður kannski bara skemmtilegt í ár.
Stór partur af helvítis útlendingunum er farinn!
Það eru ekki til peningar til þess að halda áfram að rífa niður gamla miðbæinn.
Við erum loks að byrja fatta að við erum bara eins og hver önnur smáþjóð - ekkert spes!
Það sem er hins vegar spes verður að hlúa að - landið.
We shall fight them on the fields... Ömurleg ræða feiti Breta skratti - troddu stoltinu upp í rassgatið á sjálfum þér ef þú getur teigt þig svo langt!
Kreppan virðist hafa þau áhrif að Gálknið er farið að segja sitthvað af viti.
Ég tel það mikinn kost við kreppuna að Toyotagaurinn er hættur að trufla sunnlendinga með þyrlulágflugi sínu.
Og mikið verðum við nú glöð þegar réttir úr kútnum.
Lopapeysa og gúmmískór þykja loks flott meðal pöpulsins (veit ekki hvort það er gott eða slæmt)...
Innlit - útlit hlýtur bráðum að hætta...
Það þykir alveg sjálfsagt mál að fá frí í vinnunni ef maður segist þurfa fara í bankann og skuldbreyta einhverjum lánum. Það var svo ekki svalt að biðja um svoleiðis frí í fyrra...
Núðlusúpa er komin í tísku sem matur fyrir fleyri en námsmenn.
Lopapeysa og gúmmískór þykja loks flott meðal pöpulsins (veit ekki hvort það er gott eða slæmt)...
Bíddu... Var þetta ekki alltaf í tísku? klórar sér sauðslega í kollinum
Lopapeysa og gúmmískór þykja loks flott meðal pöpulsins (veit ekki hvort það er gott eða slæmt)...
Ég á gúmmískó!! Ljómar upp
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Það er aftur orðið töff að fara í strætóGlottir eins og fífl
Það er ekki lengur til að skammast sín fyrir að vera með háan yfirdrátt. Nú hins vegar læðist fólk með veggjum með myntkörfulánin sín, sem þóttu svo töff fyrir örfáum mánuðum.
Lopapeysa og gúmmískór þykja loks flott meðal pöpulsins (veit ekki hvort það er gott eða slæmt)...
Bíddu... Var þetta ekki alltaf í tísku? klórar sér sauðslega í kollinum
Jú jú... Sýnir fjórar kynslóðir af misþófnum og tættum lopapeysum og þrjár kynslóðir af gúmmískóm Ég týndi einni kynslóð af gúmmískóm í réttum eitt sinn, eftir að hafa sötrað fullmikið... Roðnar