Jæja, ég hef fengið afgreidd lán í hinum ýmsu gjaldmiðlum. Þar sem erfitt er að segja til um gengisþróun þeirra fram í tímann er líklega vissara að fara að fordæmi Línbergs og bjóða myntkörfugreiðslu.
Fyrsta formlega boðið mitt hljóðar svo:
200.000 agatískar agötur.
1.000.000 tektískar töggur.
5.000.000 líparísk líp.
Ef áhugi er fyrir hendi get ég síðan hent með 5 tonnum af áli úr einkaálverinu sem ég er með í bakgarðinum hjá mér.
Virðingarfyllst,
Þarfagreinir
Ert þú fluttur á Sómastað?!
Nei - ég fann upp eilífðarvél og ákvað að nýta hana í álver.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að ég slæ eign minni á Lokku Lokbrá, og er hún ekki til sölu og verður það aldrei.
Ljómar upp og lofar Wayne Gretzky og lofar að vera eiganda sínum til sóma
Það tilkynnist hjer með opinberlega að ég slæ eign minni á Lokku Lokbrá, og er hún ekki til sölu og verður það aldrei.
Ljómar upp og lofar Wayne Gretzky og lofar að vera eiganda sínum til sóma
Ljómar upp og gefur Lokku köku
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hversu vel hentar nýliði þessi til baráttu gegn óvinum ríkisins ?
Ég hef aldrei notað nýliðan minn til slíkra verka en hún stóð sig vel í tunguslag við vissan mann á árshátíðinniGlottir eins og fífl
Er Annrún lesbía? Hugsar sig um og ákveður að bjóða í hana reynist svarið jákvætt
Tjah... ég hef ekki spurt -en hún er voða hlýðin.
Ég býð:
13,25 danskar krónur
2,20 breskt pund
0,71 Bandaríkjadal
Einhverja smáaura frá Póllandi, Lettlandi og Hollandi
Og pening sem hægt er að nota í skápana í búningsklefunum í Suðurbæjarlauginni í Hafnarfirði.
Jæja, ég hef fengið afgreidd lán í hinum ýmsu gjaldmiðlum. Þar sem erfitt er að segja til um gengisþróun þeirra fram í tímann er líklega vissara að fara að fordæmi Línbergs og bjóða myntkörfugreiðslu.
Fyrsta formlega boðið mitt hljóðar svo:
200.000 agatískar agötur.
1.000.000 tektískar töggur.
5.000.000 líparísk líp.
Ef áhugi er fyrir hendi get ég síðan hent með 5 tonnum af áli úr einkaálverinu sem ég er með í bakgarðinum hjá mér.
Virðingarfyllst,
Þarfagreinir
Þetta eru þau tvö tilboð sem mér hentar að taka alvarlega að svo stöddu... Ég á dulítið erfitt með að meta hvort tilboðið er betra. Ég hef samt alltaf verið dulítið veik fyrir töggum smjattar
-hins vegar veit ég ekki hvað ég ætti að gera við allar þessar kvenpersónur sem heita allar Agata -nema þá kannski bjóða þær upp næstKlórar sér í höfðinu
Hversu vel hentar nýliði þessi til baráttu gegn óvinum ríkisins ?
Ég hef aldrei notað nýliðan minn til slíkra verka en hún stóð sig vel í tunguslag við vissan mann á árshátíðinniGlottir eins og fífl
Sjeuð þjer að vísa til þess atviks sem oss grunar þá er þó á því atviki sá galli að umræddur aðili telst eigi til óvina ríkisins. Þetta gæti þó verið árangursík aðferð gegn óvinum ríkisins sje unnt að koma fyrir svefnlyfi á heppilegum stað er sprauta má í munn óvinarins.
Hversu vel hentar nýliði þessi til baráttu gegn óvinum ríkisins ?
Ég hef aldrei notað nýliðan minn til slíkra verka en hún stóð sig vel í tunguslag við vissan mann á árshátíðinni[...]
Halda mætti, að árshátíðin hafi verið undir lögð slagsmálum.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég býð Clairol fótanudd tæki og Sodastream tækið hennar mömmu(vantar í það gasflöskuna)
Einnig get ég látið fylgja með Lödu Sport 93 Módelið, Keyrð 600.000 kílómetra! En hún hefur ekki verið hreyfð síðan 1998, stendur hérna úti á túni undir gömlum áburði frá Aburðar verksmiðju ríkissins.
Ljómar upp
Sódastrímtækið er selt ef þú bíður viðráðanlegt verð (og gaskútinn tóma með)
Já, þar sem að ég hef nýlega verið skipuð sérlegur mannaveiðari og uppboðshaldari Baggalútíu hef ég ákveðið að setja af stað uppboð á nýliða. Núna, eins og flestir vita er kreppa og því tími til komin að safna böggum/evrum/aurum/þrælum/kossum/loforðum/mútum/kóbalti/ákavíti og öðru sem gæti flokkast sem gjaldmiðill hér, til mögru áranna.
Boðinn er upp Nýliðinn Annrún.
Annrún er sæt ljóshærð sveitastelpa sem hefur nýst mér vel í gegn um árin við hin ýmsustu störf til dæmis að fægja hornin mín, bursta langt og liðað hárið og hún er einnig liðtæk í ýmsar ræstingar. Annrúnu veiddi ég í raunheimum og dróg hana með mér inn á hárinu, vonandi hefur hún engum verið til ama.
P.P.S Allir sem skrifa á þennan þráð eru sjálfkrafa orðin eign bagglútíska heimsveldisins og verða boðnir upp því til framdráttar, þessi ráðstöfun er til þess að halda bagglýska hagkerfinu gangandi.
P.S. Ég áskil mér rétt til að slá hana hverjum sem er, hvenær sem mér dettur í hug.
Svo hægt sé að halda uppboðinu áfram höfum vér ákveðið, að bjóða í nýliðann tuttugu stykki af evrum, og sjö tíu og tvo hundraðshluta, þeim tengd, að auki. Þar að auki munum vér auka tilboðið með tveim pundum, og fimmtán hundraðshlutum þar úr, írskum. Loks munum vér bjóða þar í svo lítið sem milljón gramma, af kóbalti gerð, og eru þau til hægðarauka í ýmsum myndum bundin, en auðvelt þó að losa það þar úr. Er það svo gjört, svo notagildi kóbaltsins verði hið mesta.
Kemur inn með látum og veifar seðli
Sést ekki vel hvað þetta er en Hvæsi lyftir honum upp fyrir haus og sléttir úr seðlinum
Þetta er FIMM EVRUR.
Þið munið, gjaldmiðillinn sem enginn má kaupa.
Sér að Fergesji á fleiri evrur og bætir við 20
TUTTUGU OG FIMM EVRUR !
Hægt er að kaupa 2 banka og sjoppu fyrir það.
Ég býð þennan seðil, hinn helminginn af flatbökunni sem ég pantaði í gær, 2 lúkur af kattamat,
1 útrunninn smokk, pakka af ítölsku tyggjói sem bragðast svipað og krítar, eitt ekta ítalskt corneto con crema og hálfa kókflösku.
Krossleggur handleggi og byrjar að fagna sigri í þessu uppboði
Hvað er annars verið að bjóða í ?
Hlutir Kveifaráss freista oss eigi.
Aha, afsakið. Ég girnist þessa svo nefndu Annrúnu.
Ég bíð:
3 jólakort og tvö umslög frá SOS,
handklæði sem mér var sagt að Meatloaf hefði notað við gerð myndbandsins með rúminu fljúgandi í,
spádóm með kaffibolla eða krumpaðri servíettu,
Kaffiboð í raunheimum,
Kaffibaunir á Næturgelti,
Kaffikorg sem er afgangur JFK uppáhellingar,
Kaffikvörn sem er handsnúin,
3 pakka af klósettpappir (ónotuðum ef einhver ætlaði sér að vera fyndinn)
Hálfa rúllu af eldhúspappír,
Krydd frá framandi löndum,
Þræl sem er tannlaus dvergur frá Efergisistan,
Lyktina úr öskju Pandoru,
14 bíómiða sem hafa verið notaðir,
Svamp úr Zippó kveikjara af dömustærð,
Þráð (notaðan ekki fullnýttan) úr sama kveikjara,
Og að lokum kaffibolla með loki.

Ég bæti við tilboð mitt:
4 andrésblöð frá árinu 1989
Skæri með bleikum handföngum
7 rétta máltíð á eiturbrashúsinu mínu
Og 3kg af ónotuðum kattasandi.
Aha, afsakið. Ég girnist þessa svo nefndu Annrúnu.
Ég bíð:
3 jólakort og tvö umslög frá SOS,
handklæði sem mér var sagt að Meatloaf hefði notað við gerð myndbandsins með rúminu fljúgandi í,
spádóm með kaffibolla eða krumpaðri servíettu,
Kaffiboð í raunheimum,
Kaffibaunir á Næturgelti,
Kaffikorg sem er afgangur JFK uppáhellingar,
Kaffikvörn sem er handsnúin,
3 pakka af klósettpappir (ónotuðum ef einhver ætlaði sér að vera fyndinn)
Hálfa rúllu af eldhúspappír,
Krydd frá framandi löndum,
Þræl sem er tannlaus dvergur frá Efergisistan,
Lyktina úr öskju Pandoru,
14 bíómiða sem hafa verið notaðir,
Svamp úr Zippó kveikjara af dömustærð,
Þráð (notaðan ekki fullnýttan) úr sama kveikjara,
Og að lokum kaffibolla með loki.
Hrifsar þrælinn frá Kífni.
Vitið þér eigi, allir þeir, er til Efergisistan hafa farið, eru vor eigin einkaeign? Skilið honum undir eins í kolanámurnar!
Nýr saman höndum, djöfullegur á svip.
Ennfremur, þar eð þér hafið farið til Efergisistan, þá eruð þér eign konungs þar, hverjir vér erum. Skilríkin, takk!
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég býð Clairol fótanudd tæki og Sodastream tækið hennar mömmu(vantar í það gasflöskuna)
Einnig get ég látið fylgja með Lödu Sport 93 Módelið, Keyrð 600.000 kílómetra! En hún hefur ekki verið hreyfð síðan 1998, stendur hérna úti á túni undir gömlum áburði frá Aburðar verksmiðju ríkissins.
Ljómar upp
Sexhundruð þúsund? Sexhundruð þúsund? Þú hefur þá varla gert neitt annað en að keyra... þú hefur líklega keyrt norður á Blönduós á hverjum einasta degi síðan þú fékkst þetta lödubrak og þá eru hátíðardagar meðtaldir