— GESTAPÓ —
Uppboðsþráður (þrælasala)
» Gestapó   » Baggalútía
        1, 2, 3  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 19/11/08 11:11

Þarfagreinir mælti:

Jæja, ég hef fengið afgreidd lán í hinum ýmsu gjaldmiðlum. Þar sem erfitt er að segja til um gengisþróun þeirra fram í tímann er líklega vissara að fara að fordæmi Línbergs og bjóða myntkörfugreiðslu.

Fyrsta formlega boðið mitt hljóðar svo:

200.000 agatískar agötur.
1.000.000 tektískar töggur.
5.000.000 líparísk líp.

Ef áhugi er fyrir hendi get ég síðan hent með 5 tonnum af áli úr einkaálverinu sem ég er með í bakgarðinum hjá mér.

Virðingarfyllst,
Þarfagreinir

Ert þú fluttur á Sómastað?!

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 19/11/08 11:14

Nei - ég fann upp eilífðarvél og ákvað að nýta hana í álver.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Lokka Lokbrá 19/11/08 14:12

Wayne Gretzky mælti:

Það tilkynnist hjer með opinberlega að ég slæ eign minni á Lokku Lokbrá, og er hún ekki til sölu og verður það aldrei.

‹Ljómar upp og lofar Wayne Gretzky og lofar að vera eiganda sínum til sóma›

-Lesbía - Hefur stimpil frá Innflytjendahliðinu fyrir fína beljuspeki! - Opinber eign Wayne Gretzky-
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 19/11/08 14:14

Lokka Lokbrá mælti:

Wayne Gretzky mælti:

Það tilkynnist hjer með opinberlega að ég slæ eign minni á Lokku Lokbrá, og er hún ekki til sölu og verður það aldrei.

‹Ljómar upp og lofar Wayne Gretzky og lofar að vera eiganda sínum til sóma›

‹Ljómar upp og gefur Lokku köku›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Andþór 19/11/08 14:26

‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

Áróðursmeistari forsetans og sendiherra Suðurskauts, norðurskauts og annarra heimsálfulausra ríkja.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Álfelgur 19/11/08 22:29

Vladimir Fuckov mælti:

Hversu vel hentar nýliði þessi til baráttu gegn óvinum ríkisins ?

Ég hef aldrei notað nýliðan minn til slíkra verka en hún stóð sig vel í tunguslag við vissan mann á árshátíðinni‹Glottir eins og fífl›

Lokka Lokbrá mælti:

Er Annrún lesbía? ‹Hugsar sig um og ákveður að bjóða í hana reynist svarið jákvætt›

Tjah... ég hef ekki spurt -en hún er voða hlýðin.

Mu!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Álfelgur 19/11/08 22:34

Línbergur Leiðólfsson mælti:

Ég býð:
13,25 danskar krónur
2,20 breskt pund
0,71 Bandaríkjadal
Einhverja smáaura frá Póllandi, Lettlandi og Hollandi
Og pening sem hægt er að nota í skápana í búningsklefunum í Suðurbæjarlauginni í Hafnarfirði.

Þarfagreinir mælti:

Jæja, ég hef fengið afgreidd lán í hinum ýmsu gjaldmiðlum. Þar sem erfitt er að segja til um gengisþróun þeirra fram í tímann er líklega vissara að fara að fordæmi Línbergs og bjóða myntkörfugreiðslu.

Fyrsta formlega boðið mitt hljóðar svo:

200.000 agatískar agötur.
1.000.000 tektískar töggur.
5.000.000 líparísk líp.

Ef áhugi er fyrir hendi get ég síðan hent með 5 tonnum af áli úr einkaálverinu sem ég er með í bakgarðinum hjá mér.

Virðingarfyllst,
Þarfagreinir

Þetta eru þau tvö tilboð sem mér hentar að taka alvarlega að svo stöddu... Ég á dulítið erfitt með að meta hvort tilboðið er betra. Ég hef samt alltaf verið dulítið veik fyrir töggum ‹smjattar›
-hins vegar veit ég ekki hvað ég ætti að gera við allar þessar kvenpersónur sem heita allar Agata -nema þá kannski bjóða þær upp næst‹Klórar sér í höfðinu›

Mu!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 19/11/08 22:36

Álfelgur mælti:

Vladimir Fuckov mælti:

Hversu vel hentar nýliði þessi til baráttu gegn óvinum ríkisins ?

Ég hef aldrei notað nýliðan minn til slíkra verka en hún stóð sig vel í tunguslag við vissan mann á árshátíðinni‹Glottir eins og fífl›

Sjeuð þjer að vísa til þess atviks sem oss grunar þá er þó á því atviki sá galli að umræddur aðili telst eigi til óvina ríkisins. Þetta gæti þó verið árangursík aðferð gegn óvinum ríkisins sje unnt að koma fyrir svefnlyfi á heppilegum stað er sprauta má í munn óvinarins.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fergesji 19/11/08 22:48

Álfelgur mælti:

Vladimir Fuckov mælti:

Hversu vel hentar nýliði þessi til baráttu gegn óvinum ríkisins ?

Ég hef aldrei notað nýliðan minn til slíkra verka en hún stóð sig vel í tunguslag við vissan mann á árshátíðinni[...]

Halda mætti, að árshátíðin hafi verið undir lögð slagsmálum.

Konungur Efergisistan • Gáfumálaráðherra • Flöt jörð - Slétt föt - Hrein trú • Áttum bestu endurkomuna árið 2008 • Sturtufíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kveifarás 11/12/08 09:52

‹Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er›
Ég býð Clairol fótanudd tæki og Sodastream tækið hennar mömmu(vantar í það gasflöskuna)
Einnig get ég látið fylgja með Lödu Sport 93 Módelið, Keyrð 600.000 kílómetra! En hún hefur ekki verið hreyfð síðan 1998, stendur hérna úti á túni undir gömlum áburði frá Aburðar verksmiðju ríkissins.
‹Ljómar upp›‹›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kífinn 11/12/08 09:55

Sódastrímtækið er selt ef þú bíður viðráðanlegt verð (og gaskútinn tóma með)

Takk fyrir áheyrnina.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fergesji 11/12/08 10:02

Álfelgur mælti:

Já, þar sem að ég hef nýlega verið skipuð sérlegur mannaveiðari og uppboðshaldari Baggalútíu hef ég ákveðið að setja af stað uppboð á nýliða. Núna, eins og flestir vita er kreppa og því tími til komin að safna böggum/evrum/aurum/þrælum/kossum/loforðum/mútum/kóbalti/ákavíti og öðru sem gæti flokkast sem gjaldmiðill hér, til mögru áranna.

Boðinn er upp Nýliðinn Annrún.
Annrún er sæt ljóshærð sveitastelpa sem hefur nýst mér vel í gegn um árin við hin ýmsustu störf til dæmis að fægja hornin mín, bursta langt og liðað hárið og hún er einnig liðtæk í ýmsar ræstingar. Annrúnu veiddi ég í raunheimum og dróg hana með mér inn á hárinu, vonandi hefur hún engum verið til ama.
P.P.S Allir sem skrifa á þennan þráð eru sjálfkrafa orðin eign bagglútíska heimsveldisins og verða boðnir upp því til framdráttar, þessi ráðstöfun er til þess að halda bagglýska hagkerfinu gangandi.
P.S. Ég áskil mér rétt til að slá hana hverjum sem er, hvenær sem mér dettur í hug.

Svo hægt sé að halda uppboðinu áfram höfum vér ákveðið, að bjóða í nýliðann tuttugu stykki af evrum, og sjö tíu og tvo hundraðshluta, þeim tengd, að auki. Þar að auki munum vér auka tilboðið með tveim pundum, og fimmtán hundraðshlutum þar úr, írskum. Loks munum vér bjóða þar í svo lítið sem milljón gramma, af kóbalti gerð, og eru þau til hægðarauka í ýmsum myndum bundin, en auðvelt þó að losa það þar úr. Er það svo gjört, svo notagildi kóbaltsins verði hið mesta.

Konungur Efergisistan • Gáfumálaráðherra • Flöt jörð - Slétt föt - Hrein trú • Áttum bestu endurkomuna árið 2008 • Sturtufíkill
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 11/12/08 10:02

‹Kemur inn með látum og veifar seðli›
‹Sést ekki vel hvað þetta er en Hvæsi lyftir honum upp fyrir haus og sléttir úr seðlinum›

Þetta er FIMM EVRUR.
Þið munið, gjaldmiðillinn sem enginn má kaupa.
‹Sér að Fergesji á fleiri evrur og bætir við 20›
TUTTUGU OG FIMM EVRUR !
Hægt er að kaupa 2 banka og sjoppu fyrir það.

Ég býð þennan seðil, hinn helminginn af flatbökunni sem ég pantaði í gær, 2 lúkur af kattamat,
1 útrunninn smokk, pakka af ítölsku tyggjói sem bragðast svipað og krítar, eitt ekta ítalskt corneto con crema og hálfa kókflösku.

‹Krossleggur handleggi og byrjar að fagna sigri í þessu uppboði›

Hvað er annars verið að bjóða í ?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fergesji 11/12/08 10:02

Hlutir Kveifaráss freista oss eigi.

Konungur Efergisistan • Gáfumálaráðherra • Flöt jörð - Slétt föt - Hrein trú • Áttum bestu endurkomuna árið 2008 • Sturtufíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kífinn 11/12/08 10:20

Aha, afsakið. Ég girnist þessa svo nefndu Annrúnu.
Ég bíð:
3 jólakort og tvö umslög frá SOS,
handklæði sem mér var sagt að Meatloaf hefði notað við gerð myndbandsins með rúminu fljúgandi í,
spádóm með kaffibolla eða krumpaðri servíettu,
Kaffiboð í raunheimum,
Kaffibaunir á Næturgelti,
Kaffikorg sem er afgangur JFK uppáhellingar,
Kaffikvörn sem er handsnúin,
3 pakka af klósettpappir (ónotuðum ef einhver ætlaði sér að vera fyndinn)
Hálfa rúllu af eldhúspappír,
Krydd frá framandi löndum,
Þræl sem er tannlaus dvergur frá Efergisistan,
Lyktina úr öskju Pandoru,
14 bíómiða sem hafa verið notaðir,
Svamp úr Zippó kveikjara af dömustærð,
Þráð (notaðan ekki fullnýttan) úr sama kveikjara,
Og að lokum kaffibolla með loki.

Takk fyrir áheyrnina.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 11/12/08 10:31

Hvæsi mælti:

‹Kemur inn með látum og veifar seðli›
‹Sést ekki vel hvað þetta er en Hvæsi lyftir honum upp fyrir haus og sléttir úr seðlinum›

Þetta er FIMM EVRUR.
Þið munið, gjaldmiðillinn sem enginn má kaupa.
‹Sér að Fergesji á fleiri evrur og bætir við 20›
TUTTUGU OG FIMM EVRUR !
Hægt er að kaupa 2 banka og sjoppu fyrir það.

Ég býð þennan seðil, hinn helminginn af flatbökunni sem ég pantaði í gær, 2 lúkur af kattamat,
1 útrunninn smokk, pakka af ítölsku tyggjói sem bragðast svipað og krítar, eitt ekta ítalskt corneto con crema og hálfa kókflösku.

‹Krossleggur handleggi og byrjar að fagna sigri í þessu uppboði›

Hvað er annars verið að bjóða í ?

Ég bæti við tilboð mitt:
4 andrésblöð frá árinu 1989
Skæri með bleikum handföngum
7 rétta máltíð á eiturbrashúsinu mínu
Og 3kg af ónotuðum kattasandi.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fergesji 11/12/08 13:13

Kífinn mælti:

Aha, afsakið. Ég girnist þessa svo nefndu Annrúnu.
Ég bíð:
3 jólakort og tvö umslög frá SOS,
handklæði sem mér var sagt að Meatloaf hefði notað við gerð myndbandsins með rúminu fljúgandi í,
spádóm með kaffibolla eða krumpaðri servíettu,
Kaffiboð í raunheimum,
Kaffibaunir á Næturgelti,
Kaffikorg sem er afgangur JFK uppáhellingar,
Kaffikvörn sem er handsnúin,
3 pakka af klósettpappir (ónotuðum ef einhver ætlaði sér að vera fyndinn)
Hálfa rúllu af eldhúspappír,
Krydd frá framandi löndum,
Þræl sem er tannlaus dvergur frá Efergisistan,
Lyktina úr öskju Pandoru,
14 bíómiða sem hafa verið notaðir,
Svamp úr Zippó kveikjara af dömustærð,
Þráð (notaðan ekki fullnýttan) úr sama kveikjara,
Og að lokum kaffibolla með loki.

‹Hrifsar þrælinn frá Kífni.›
Vitið þér eigi, allir þeir, er til Efergisistan hafa farið, eru vor eigin einkaeign? Skilið honum undir eins í kolanámurnar!
‹Nýr saman höndum, djöfullegur á svip.›
Ennfremur, þar eð þér hafið farið til Efergisistan, þá eruð þér eign konungs þar, hverjir vér erum. Skilríkin, takk!

Konungur Efergisistan • Gáfumálaráðherra • Flöt jörð - Slétt föt - Hrein trú • Áttum bestu endurkomuna árið 2008 • Sturtufíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/12/08 13:16

Kveifarás mælti:

‹Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er›
Ég býð Clairol fótanudd tæki og Sodastream tækið hennar mömmu(vantar í það gasflöskuna)
Einnig get ég látið fylgja með Lödu Sport 93 Módelið, Keyrð 600.000 kílómetra! En hún hefur ekki verið hreyfð síðan 1998, stendur hérna úti á túni undir gömlum áburði frá Aburðar verksmiðju ríkissins.
‹Ljómar upp›‹›

Sexhundruð þúsund? Sexhundruð þúsund? Þú hefur þá varla gert neitt annað en að keyra... þú hefur líklega keyrt norður á Blönduós á hverjum einasta degi síðan þú fékkst þetta lödubrak og þá eru hátíðardagar meðtaldir

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
        1, 2, 3  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: