Já, þar sem að ég hef nýlega verið skipuð sérlegur mannaveiðari og uppboðshaldari Baggalútíu hef ég ákveðið að setja af stað uppboð á nýliða. Núna, eins og flestir vita er kreppa og því tími til komin að safna böggum/evrum/aurum/þrælum/kossum/loforðum/mútum/kóbalti/ákavíti og öðru sem gæti flokkast sem gjaldmiðill hér, til mögru áranna.
Boðinn er upp Nýliðinn Annrún.
Annrún er sæt ljóshærð sveitastelpa sem hefur nýst mér vel í gegn um árin við hin ýmsustu störf til dæmis að fægja hornin mín, bursta langt og liðað hárið og hún er einnig liðtæk í ýmsar ræstingar. Annrúnu veiddi ég í raunheimum og dróg hana með mér inn á hárinu, vonandi hefur hún engum verið til ama.
P.P.S Allir sem skrifa á þennan þráð eru sjálfkrafa orðin eign bagglútíska heimsveldisins og verða boðnir upp því til framdráttar, þessi ráðstöfun er til þess að halda bagglýska hagkerfinu gangandi.
P.S. Ég áskil mér rétt til að slá hana hverjum sem er, hvenær sem mér dettur í hug.
HAHAHAHAHAHAHA ætli nokkur vilji kaupa mig..
Á ekki neitt.. En ég skal taka hana frítt...
Túkall... danskan.l
Ansi er þetta vel boðið... Ég gæti byggt höll í Öskjuhlíð. Lætur sig dreyma
ég býð einn bjórmiða á næstu árshátíð.
En þá vil ég fá hana senda í pósti á morgun.
ég býð einn bjórmiða á næstu árshátíð.
En þá vil ég fá hana senda í pósti á morgun.
Einn bjórmiða á næstu árshátíð og 3 á árshátíðina 2020 þar sem að þú verður hvort eð er of fullur til að drekka meira. Og ég get sent nýliðann með bréfadúfu á morgun en þá vil ég fá miðana mína með tímavélinni ekki seinna en í gær! Gerist hörkuleg
Hún er vel tennt, vonandi?
Gott að heyra. Tennur segja ýmislegt um almenna umhirðu þrælsins - og ekki er verra að þeir hafi góða vöðvabyggingu. Slíkt sýnir að þeir hafi verið vel fóðraðir.
Setjum þetta þá í gang.
Misnotar aðgang sinn að tölvukerfum RBB og opnar persónulegar lánalínur til nokkurra auðugustu viðskiptalanda Baggalútíu
Hversu vel hentar nýliði þessi til baráttu gegn óvinum ríkisins ?
Er Annrún lesbía? Hugsar sig um og ákveður að bjóða í hana reynist svarið jákvætt
Er ekki gjaldyerisskortur í gangi? Ég get kannski boðið einhverja ammríska dollara ef þurfa þykir.
Stekkur hæð sína Ég á evrur. Að minnsta kosti þrjár ef ekki fjórar. Ljómar upp
Ég býð:
13,25 danskar krónur
2,20 breskt pund
0,71 Bandaríkjadal
Einhverja smáaura frá Póllandi, Lettlandi og Hollandi
Og pening sem hægt er að nota í skápana í búningsklefunum í Suðurbæjarlauginni í Hafnarfirði.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að ég slæ eign minni á Lokku Lokbrá, og er hún ekki til sölu og verður það aldrei.
Jæja, ég hef fengið afgreidd lán í hinum ýmsu gjaldmiðlum. Þar sem erfitt er að segja til um gengisþróun þeirra fram í tímann er líklega vissara að fara að fordæmi Línbergs og bjóða myntkörfugreiðslu.
Fyrsta formlega boðið mitt hljóðar svo:
200.000 agatískar agötur.
1.000.000 tektískar töggur.
5.000.000 líparísk líp.
Ef áhugi er fyrir hendi get ég síðan hent með 5 tonnum af áli úr einkaálverinu sem ég er með í bakgarðinum hjá mér.
Virðingarfyllst,
Þarfagreinir