Ég get nú ekki lofað því. Ég myndi vafalaust finna mér einhverja druslu sem gerir ekki kröfur.
Ritar á minnismiða fyrir sjálfan sig: muna að eyða þessu ef Regína segir nei.
Svo myndi ég vafalaust koma mér upp bunka af frillum til að sefa sorg mína.
Þetta er langt frá því að vera eðlilegur umhugsunarfrestur, Regína. Fjandinn hafi það, mér er skapi næst að giftast manninum sjálf svo hann þurfi ekki að standa í þessu stappi!
Sko Regína, þær bíða í röðum, jafnvel hinar ólíklegustu!
Bíddu er djobbið ennþá á lausu?
Þetta er langt frá því að vera eðlilegur umhugsunarfrestur, Regína. Fjandinn hafi það, mér er skapi næst að giftast manninum sjálf svo hann þurfi ekki að standa í þessu stappi!
Sko Regína, þær bíða í röðum, jafnvel hinar ólíklegustu!
Hef ég ekki sagt að Tina sé gott drottningarefni?
Jarmi, ef ég verð meykóngur, vilt þú þá verða kóngurinn minn?
Jarmi, ef ég verð meykóngur, vilt þú þá verða kóngurinn minn?
Nei, nú þykir mér skörin farin að færast upp í bekkinn - og öfugt!
Það er ekkert fjölveri leyft við þessa hirð!
Þykir mér það heldur gróft hjá heitmey minni að hefja konunglegt framhjáhald þegar í tilhugalífinu!
En það væri semsagt í lagi seinna?
Jarmi, ef ég verð meykóngur, vilt þú þá verða kóngurinn minn?
Jarmi kóngur!
Jæja, þá er það lokaútspilið: Regína, ég býð þér drottningarnafnbót auk þess sem þú mátt líka kalla þig meykóng. Svo býðst þér að verða, ásamt mér, konunglegt málfarsyfirvald.
Nú verður þú að svara, já eða nei. Ég stend ekki í frekara málþófi.
Strunsar út af sviðinu og ljómar upp
Allt í lagi þá.
Ef ég má halda frillur skal ég samþykkja að Jarmi verði konunglegur friðill drottningar. Eins má hann kalla sig kóng ef hann meinar ekkert með því, það var ég þegar búinn að leyfa.
Hamast um þráðinn eins og frummaðurinn sem hann jú er
Rífur af sér bindið og setur upp BurgerKing kórónuna sína
Ef ég má halda frillur skal ég samþykkja að Jarmi verði konunglegur friðill drottningar. Eins má hann kalla sig kóng ef hann meinar ekkert með því, það var ég þegar búinn að leyfa.
Má ég þá ráða hvort þú heldur frillur? Ljómar upp
Þetta er betra en ég hélt.
Afsakið, nú man ég eftir einu.
Sem varaforseti Baggalútíu á ég mér varaforsetaherra. Gengur það að hann verði það áfram?
Ó, hélstu að þú hefðir ekkert um það að segja?
Glottir eins og fífl
Nei, sko, ég verð auðvitað að halda frillur. Annað væri ekki við hæfi.
Hvern varstu þá að spyrja: Ef ég má halda frillur o.s.frv.?
Ég fer nú að endurskoða þetta bónorð. Þú er alltaf að nöldra.
Skellihlær Tina hefði verið betri. Ljómar upp
En ég hef ekkert á móti frilluhaldi, alls ekki neitt. En það er kurteisi að drottningin hafi hönd í bagga með valið.