Bláir Gestapóar hafa löngum útmálað meinta yfirburði sína, andlega jafnt sem líkamlega. En við, sem betur vitum, getum ekki látið hjá líða að geta þess, svo bláir vaði ei meir í sinni villu, að þeir hafa innan sinna raða gálkn og seiðkarl, hvurra framkoma ekki stýrist af háttvísi eður siðmenningu. Litaval þessara gesta hlýtur því að sanna endanlega fyrir öðrum, betur siðuðum, einstaklingum bláum að lit, að þeirra litur getur ekki túlkast sem siðmenntaður litur, glíkt og t.d. brúngráleitt.
Jahá.
Mammaðín!
Nauhauts!
Ullar, smekklega
Nei ÞÚ!
Tosar teygjuna á nærbuxm Gunnþórs alveg upp að hnakka
Hættu þessu röfli og ekki tala illa um þér æðri litþátt.
Heyri ég vott af afbrýðissemi?
Bob var líka bölvaður dóni - og hann var eins á litinn og þú.
Gulir eru einfaldlega bestir. Ekkert meira um þessi litamál að segja. Svona hefur þetta bara alltaf verið, rétt eins og með önnur náttúrulögmál.
Eigum við að rifja upp litinn á vissum úlf?
Var ekki Úlfamaðurinn eins og Gúnter á litinn?
Var ekki Úlfamaðurinn eins og Gúnter á litinn?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Stofnar Sannleiksráðuneyti Blámanna og lætur það vera fyrsta embættisverk sitt sem ráðherra þess að senda Enteri póst þar sem hann er beðinn um að lita téða ólátabelgi í öðrum lit en bláum og gefa út yfirlýsingu þess efnis að þeir hafi aldrei verið bláir
Úbbs - það var nú ekki meiningin að skrifa þetta sem opið innlegg. Ég ætlaði að stofna aukaegó til að senda Enteri póst, en eitthvað hefur klikkað hjá mér. Ég bið ykkur vinsamlegast að hundsa fyrra innlegg.
Sannleikanum er hver sárreiðastur.
Um þennan mann úlfa, var hann ekki hreinsaður út, enda greinilega mistök hvernig honum var skipað til litasætis.
Úbbs - það var nú ekki meiningin að skrifa þetta sem opið innlegg. Ég ætlaði að stofna aukaegó til að senda Enteri póst, en eitthvað hefur klikkað hjá mér. Ég bið ykkur vinsamlegast að hundsa fyrra innlegg.
Grenjar af hlátri
Bláir eyða ekki þeim sem eru misjafnlega af Enter gerð. Við erum ekki hlynnt útrýmingu.
Sannleikanum er hver sárreiðastur.
Um þennan mann úlfa, var hann ekki hreinsaður út, enda greinilega mistök hvernig honum var skipað til litasætis.
Eini maðurinn sem nokkurntíman hefur þurft að hreinsa af svæðinu - hann var brúnn. Það þykir mér segja nokkuð.
Úlfamaðurinn var stökkbreytt afbrigði sem varð til er við brúnu snillingarnir vorum að reyna að skapa ofurpóann...
Hann samanstóð af fölvabláu kyni (tókum DNA sýni af einhverjum sóðaþræði í Undirheimum þar sem Finngálkn hafði verið)... rauða litinn fengum við úr horni Frella (náðum að einangra eggfrumu þar, þó ótrúlegt megi virðast) og öllu þessu var blandað saman við hlandgulan lit úr hala Nykurs...
Þetta var vel heppnuð tilraun... en útkoman var skelfileg eins og flestir vita... eini feillinn var að klóna ekki bara okkur sjálfa, sem hefði gefið betri raun...
Við bláir erum það göfugir að við getum haft innan okkar raða menn eins og Finngáknið og Skrepp. Þeir eru kanski pínulítið óheflaðir blessaðir en ég held að við verðum öll að viðurkenna að félagsrit þeirra eru þau félagsrit sem vekja hvað mesta athygli. Við leyfum tjáningarfrelsinu að blómstra.