Við skanka og spriklandi apamyndir eigum okkar athvarf hérna.
Okkar likami allur með kostum og göllum birtist alþjóð á meðan hinir í mannsmyndunum geta sýnt sitt fagra andlit uppstrílað og málað með fögrum litum.
Meira að segja eru til blá, gul, græn, rauð og hvað eina síður sem mannsmyndirnar hópast saman á og hylla sjáfa sig vegna litarhafts.
Við apaskankarnir höfum ekki enn fengið þá mynd eða ímynd sem við óskum eftir. Við erum hundsuð og hrakin.
(Ekki af öllum, langt frá því.
Það er fullt af góðum manns og dýra myndum sem eru leiðbeinandi og taka okkur vel)
Markmið okkar apaskankanna er að myndast vel og þar með að fella núverandi mynd okkar fyrir þá mynd sem samfélag Gestapóa samþykkir og dugar þeim til að taka okkur í sátt og virða okkar skoðanir og sýna okkur að við erum velkomin í samfélagið og við þurfum á hjálp þeirra að halda til að fóta okkur sem best á svellinu í þessu hála samfélagi.
Hér getum við spjallað óháð litarmyndunum um okkar ær og kýr.
Ég er Lokka Lokbrá. Ég er dulbúin í gerfi apaskanka enn um sinn.
Ég er bara róni á Skaganum, eða ég var róni á Skaganum. Ég eyddi myndinni minni og er því tilneyddur til að vera hér og hanga.
Fer í bananasplitt
Setjiði bara upp hatt; það dugði mér. Starir þegjandi út í loftið
Ég er búinn að senda þessum Enter mynd og nú bíð ég bara eftir að hann setji hana inn.
Ef hún var ekki af lesbíum þarftu að bíða lengi.
Ef hún var ekki af lesbíum þarftu að bíða lengi.
Átti þetta að vera eitthvað skot á mig?
Nei... held ekki... var það?
Það er bara hávísindaleg staðreynd að til að fanga athygli Vendihnappa þá er jafnan gott að hafa einhverja tilvísun í lesbíur... eykur möguleikan á árángri um 168% samkvæmt nýjum óáreiðanlegum tölum.
Ég er búin að senda heilögum Enter 3svar sinnum póst. Núna prófaði ég að skíra hann lesbía. Kannski að hann lesi þennan..
Er algjörlega að verða örvingluð úr taugarálagi og hjartaráfallateymisvinnu... titrar og skelfur Blóðið í mér fer að fara á hvolf og taugarnar í flækju. Grætur með ekka
Ef hún var ekki af lesbíum þarftu að bíða lengi.
Átti þetta að vera eitthvað skot á mig?
Kannski ættir þú að prófa að senda honum póst.
Elsku besti Enter minn
einum þér má treysta
Lokkumynd að leggja inn
á lesbíu með neista
Æi. Myndin átti nú að sýna annað en rautt x Starir þegjandi út í loftið
Það er oft bölvað vesen að hlaða upp myndum hérna, því miður.
Eru aparnir að hrekkja lesbíurnar?
Ég er búin að senda heilögum Enter 3svar sinnum póst. Núna prófaði ég að skíra hann lesbía. Kannski að hann lesi þennan..
Er algjörlega að verða örvingluð úr taugarálagi og hjartaráfallateymisvinnu... titrar og skelfur Blóðið í mér fer að fara á hvolf og taugarnar í flækju. Grætur með ekka
Ertu bara með eina taug og hvað kemur hjörtur þessu við?