ÞESSI GAUR!
HIÐ NÝJA ANDLIT ILLSKUNAR
ANTI-KRISTUR HEFUR VERIÐ FUNDIN.
Gordon Brown, eða Þið-vitið-hver eins og hann verður kallaður héðan í frá réðst í gær gegn okkar heittelskuðu nýlendu Íslandi með ofsafenginni frystingu. Eins og það hafi nú ekki verið nógu kalt hérna fyrir!
Þessi maður fer við hlið manna á borð við Svarthöfða, Sauron myrkradróttinn, Adolf Hitler, Jafar og Skara í Lion King á spjöldum sögunnar.
Mín spurning til ykkar er, hvernig eigum við að refsa honum? Hvernig eigum við að láta hann finna til tevatnsins? Hvar keypti Davíð ölið? Vegna þess að við þurfum að sýna honum það!
Það er löngu kominn tími til að þurrka þessar eyjar, þessar hrákaslummur sem hann segist stjórna, af yfirborði jarðar!
Ég fékk nú hlutverkið Frosti í síðasta mafíósaleik. Er það þessvegna sem skuldir mínar hafa verið frystar?
mælir eindregið með því að Vladimir bæti Gordon Brown á lista yfir óvini ríkisins
Setur Gordon Brown efst á listann ógurlega yfir óvini ríkisins og Alistair Darling næst efst
Ég fékk nú hlutverkið Frosti í síðasta mafíósaleik. Er það þessvegna sem skuldir mínar hafa verið frystar?
Varstu búinn að gleyma því aftur að þú baðst mig um að frysta þær?
Veit ekki alveg hvaðan þú dregur þá ályktun, en jú, hann er alger kelling!
Sjáiðið myndina: Það er einsog hann sé að borða velling
Ef ég myndi hitta þennan mann úti á götu, þá myndi ég að öllum líkindum reka út úr mér tunguna.
Hann lítur út fyrir að vera tilbúinn að taka á móti útrekinni tungu.
Mér finnst hann vera á svipinn eins og hann sé að pissa á sig á meðan einhver er að segja honum að hann sé með klamydíu .