Ríkisstjórnin í Baggalútíu vill ekki leyfa nema einn banka, Ríkisbanka Baggalútíu. Þá verður engin keppni við aðra banka um starfsfólk með tilheyrandi launaþenslu, bónusum og sóun á peningum og orku sem fer í 'headhunting', engir þurfa að velkjast í nagandi óvissu og vafa um hvar best sje að geyma sparnaðinn og allir verða ánægðir.
Nú þarf sem fyrsta verk að ráða bankastjóra og æðstu stjórnendur. Bankastjórn mun sjá um ráðningar en þá stjórn skipa allir ráðherrar baggalútíska heimsveldisins. Laun bankastjórnar skulu vera ákveðið hlutfall af launum æðstu yfirmanna bankans. Bankastjórn sjer um að semja við æðstu stjórnendur bankans um launakjör þeirra Ljómar upp.
Má ég vera yfir-lánalánari? Plís Vladi. Ha? plís.. Ég þarf ekkert svo stóra skrifstofu. Bara góða tölvu og góða tengingu. Og ég lofa að lána ekki þeim sem ekki geta borgað. Og pje ess. ég mundi alveg nauðsynlega þurfa borgarjeppa.
Æ ég nenni ekki að bera ábyrgð á einhverju rugli, maður veit aldrei hverju lýðurinn tekur uppá ef upp kemst. Má ég ekki bara vera ljóshærði einkaritarinn, ég get vélritað alveg.. öh... nokkur orð á mínútu... Snýr upp á ljósan hárlokk og lagar nælonsokkana
P.s. Ætti skammstöfunin ekki að vera RBB?! Flissar pínu
____________________________________________________________Suðurskautslandið 2008
Þá sæki ég hér með um starf bankastjóra Ríkisbanka Baggalútíu!
Ég tel mig meira en hæfan í starfið. Lítið bara á myndina mína, ég er sjálfumglaður ungur maður sem nánast aldrei hefur þurft að óhreinka hendur mínar með plebbavinnu.
Ég hef allnokkrar árásarmörgæsir til umráða sem nýtast geta vel við innheimtu og ég drekk kaffið mitt svart þannig að tilheyrandi vesen með mjólk og sykur væri fjarri á fundum.
Ennig er auðvelt fyrir ráðherra ríkistjórnarinnar að fá mig til að samþykkja það hikstalaust hvað þeir vilja því ég hef fyrir löngu lært það að maður bítur ekki hendina sem fæðir mann.
Bankinn myndi auðvitað styrkja hinar ýmsu rannsóknir á kóbalti, hergögnum, veðurfræðum og jafnvel kosta baráttuna gegn óvinum ríkisins beint ef einhver afgangur er eftir þegar laun æðstu embættismanna hafa verið greidd.
Einnig sé ég fyrir mér sérstakan sjóð stofnaðan sem myndi hafa það göfuga markmið að tryggja hörkuímynd forsetans og tryggja fjármagn svo hægt sé að binda enda á miður þrálátan orðróm sem sumir andlega veikir íbúar okkar ríkis virðast hafa um handhafa þess embættis.
Undirritað
Andþór xT
P.s. Ætti skammstöfunin ekki að vera RBB?! Flissar pínu
Ég þekki stelpu með skammstöfunina RBB.. og skammstöfunin verður að vera RBBGefur frá sér vellíðunarstunu
Hendir reiknivél í Andþór
Má ég vera fjölmiðlafulltrúi bankans? Ég lofa að hrúga alls kyns óskiljanlegum fræðiorðum inn í allar yfirlýsingar (auðvitað myndi ég aldrei svara spurningum) svo almenningur mun aldrei vita hvað fer fram innan veggja bankans.
Ég get verið yfirþarfagreinir á innra sviði bankans. Ég get greint þarfir æðstu stjórnenda hvað bónusa og aðrar nauðsynlegar sporslur varðar.
Má ég vera fjölmiðlafulltrúi bankans? Ég lofa að hrúga alls kyns óskiljanlegum fræðiorðum inn í allar yfirlýsingar (auðvitað myndi ég aldrei svara spurningum) svo almenningur mun aldrei vita hvað fer fram innan veggja bankans.
Það er í lagi svo fremi að þjer lofið að svara aldrei spurningum um launakjör æðstu stjórnenda og stjórnarmanna.
Ég vil starf hoppar af spennu
Umsókn
Hjer með sækjum vjer, Wayne Gretzky um starf við RB.
Starfið skal vera yfirsparigrísahannari. Vjer fáum að hanna alla sparigrísi sem bankinn gerir.
Annars mælum vjer með því að stefna bankans verði sú að gefa aldrei neitt upp um launakjör og bjóða öllum starfsmönnum til Spánar í 4 mánuði á sumri hverju. Spánn er náttúrulega ekki til en það gerir förina enn skemmtilegri.
Má ég vera fjölmiðlafulltrúi bankans? Ég lofa að hrúga alls kyns óskiljanlegum fræðiorðum inn í allar yfirlýsingar (auðvitað myndi ég aldrei svara spurningum) svo almenningur mun aldrei vita hvað fer fram innan veggja bankans.
Það er í lagi svo fremi að þjer lofið að svara aldrei spurningum um launakjör æðstu stjórnenda og stjórnarmanna.
Eins og ég sagði, mun ég aldrei svara nokkrum spurningum.
Sem spillingamálaráðherra og stjórnandi Íslands - sem Baggalútíubanki (Ríkisbanki Baggalútíu) yfirtók 90% í nýverið - þá hlýt ég að fá stöðu stjórnarformanns og yfirfjáraustursstjóra Ríkisbanka Baggalútíu.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að ég sæki hjer með formlega um starf rekstrarstjóra.
Ég tel að kunnátta mín skari framúr á þessu sviði, þarsem lítið hafi verið að gera á eiturbrashúsinu
mínu undanfarið og ég því þurft að reka all mikið af starfsfólki, og fari því létt með að reka einn banka.
Laumar nokkrum skjalatöskum af plútóníum undir borðið hjá Vlad ásamt vænu búnti af evrum
Mig vantar bara starf sem gefur mér há laun án þess að ég þurfi eitthvað að leggja mig framm. Ekki spillir fyrir ef titillinn er flottur.
Ég get tekið að mér að verða yfirlántakandi RBB.
Einnig tel ég einboðið að Jóakim, sem helsti áhættufjárfestir Baggalútíu, verði að festa verulegt fé í RBB.
Skorar á Jóakim