Margar sögur eru til af bauv, hinum eina sanna, en margar hverjar eru svo ótrúlegar að sumir hafa haldið því fram að bauv sé jafnvel ekki til.
Við hér á Gestapó vitum þó betur og þekkjum bauv af engu öðru en stórkostlegheitum og yfirburðum á öllum sviðum.
Hér á þessum þræði skulum við safna saman öllum þeim staðreyndum sem okkur dettur í hug um hann bauv okkar.
1. bauv taldi upp í óendanlegt - tvisvar.
2. bauv les ekki bækur, hann starir á þær þar til þær gefast upp og færa honum þá vitneskju sem hann þarf.
3. bauv skrifar ekki innlegg, orðin raða sér sjálf saman af einskærri hræðslu.
4. bauv hleypur svo hratt að hann getur hlaupið hringinn í kringum hnöttinn og lamið sig í hnakkann.
5. Í póker er aðeins ein hendi sem er betri en konungleg litaröð. Það er bauvhöndin.
6. Í bardaga milli Nietzsche og Súpermans væri sigurvegarinn bauv.
7. bauv getur horft á 60 mínútur á 22 sekúndum.
8. Ef þú gefur bauv blað og blýant getur hann skrifað öll verk Shakespeare á innan við tveimur sekúndum.
9. Ef þú átt fimmþúsundkall og bauv líka á bauv meiri pening en þú.
10. bauv gengur ekki með úr. bauv ákveður hvað klukkan er.
11. bauv er bauv.
12. Það er útbreiddur misskilningur að það sé fjarlægðin sem gerir fjöllin blá. Hið rétta er að það er bauv sem gerir það.
13. Bauv er ástæða þess að Valli felur sig.
14. bauv getur vel orðið óbarinn biskup.
„Staðreyndir um bauv“ er íslenzka, „bauv staðreyndir“ er það ekki. Það er enska með íslenzkum orðum.
15. Þegar þú segir enginn er fullkominn þá ertu að móðga bauv.
Gunnzi var númer 15 ...hopp og hí..
17. Bauv sést á einhvern máta í öllum bond myndunum.
18. bauv fékk bílprófið þegar hann var sextán...
...daga gamall.
19.Bauv fór til tunglsins áður en fólk vissi að það væri til.
19. (Innlegg Günthers var ekki staðreynd um bauv, heldur um málfræði.)
Bauv þarf aldrei að bursta tennurnar því hann borðar bara grænmeti, eins og til dæmis súkkulaðigulrætur og sykurbanana.
Eruð þið að tala um litla loðna kvikindið sem ég er að úða dauðu börnunum mínum yfir núna???