Bara verð að prófa að stofna þráð... kannski er til eitthvað svipað.
Hér skal yrkja í keðju með frjálsri aðferð en hagyrðingar skulu einskorða sig við að lýsa eigin ágæti. Til dæmis eru eftirfarandi staðreyndir um undirritaðan:
Efist eigi! Á mér finnst sko enginn ljóður.
Fekilegur fræðasjóður,
fagur og í rúmi góður.
Góður er orð sem mér alls ekki nægir.
Albestur nær mér víst betur að lýsa.
Enga ég þekki sem eru vel frægir
að ekki þeir stanslaust mig lofa og prísa.
Prístu þig sælan að sjá mig -hinn geðveika fola
sem sífellt er bestur í öllu og veit manna best
Hættu nú kauði að væla og endalaust vola
vit þittt er ágætt en hérna er gáfan víst mest.
Mestur, bestur, heilla-hestur,
Hlewa-Gestur.
Gestur á jörð gyðjan krossa,
glöð hún veitir þegnum lið.
Blessanir og bjargir fossa
brosi konan rétt þér við.
Við Drottinn erum dásamlega líkir:
dyggðugir svo finnast engir slíkir,
gáfaðir og geypilega ríkir,
göndullinn er eins og stjörnukíkir!
Hver er sá sem sjálfan Guð til bjó?
Sá er lifði, er flestur annar dó...
og skáldamiði merkustum út spjó
og mesta reginskóginn sjálfur hjó?
- Enginn nema hinn eini og sanni
elskulegi Pó.
Hoppa yfir og laga keðjuna....
Stjörnukíkir starir á
með stóru augun treg.
Falleg er mín fagra brá
fagur þyki ég.
Ég er sætur, ég er ætur
ég er bestur
Alldrei græt ég, alltaf mætur
alldrei verstur.
Þetta á reyndar að vera í keðju..en voddafokk... [Reddað... Skabbi]
Ég er sætur ég er bestur
ég er fagur ég er mestur
ég er líka svaka sætur
sætur já og kannski ætur.
Ætur ég væri ef væri ég eitur
volgur ég er þó að regnið sé kalt.
Alltaf ég þyki víst helvíti heitur
heimskingjar flestir en ég veit þó allt.
Allt er mér einungis leikur,
ég aldrei verð fúll eða veikur.
Ég er góður í gegn,
ég er gagnlegur þegn,
ég er gæinn sem aldrei varð smeykur.
Smeykur var ég ekki ögn,
aldrei neitt ég hræddist
Við heiminn bættust gullin gögn
þá grallarinn Pó fæddist.
Fæddist ég sem fagurt ljós;
fullkomleikans sönnun um
ofurmenni – uppsker hrós
í öllum helztu könnunum.
Könnunum skal af krafti sinna,
þær koma að gagni. Æ, og þó,
Ógerningur er að finna
einhvern, sem er betri en Pó.
Póar flestir eru æði
endalaus þar finnast gæði.
Ég samt þyki þarna bestur
þrautseigur og mjög fínn gestur.
-gestur þessi heitir Hlé-
hann er aldrei spar á fé
alltaf lét'ann aura í té
öllum sem þá vantaðe.
Vantaðe ei fanta fé
fékk ég alltaf skuld og spé
spéfugl er og bestur bið
biðill sem að fæ ei frið.
Friðsæll, slyngur, feikisnjall.
Firnarsterkur, bestur.
Ljóðskáld, merkur löggukall,
lögfræðingur, prestur.