Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer höfum til sölu gríðarleg verðmæti: Einn dollar. Sá/sú sem hæst býður fær hann.
Áhugavert ...
Í hvernig ásigkomulagi er seðillinn?
Ég bíð.
Að hika er sama og tapa! Ekki stanna!
Að hika er sama og tapa! Ekki stanna!
Rjett er það - vjer fórum af stað með það í huga að taka eigi tilboðum undir ákveðnu verðmæti. Hvert það verðmæti er verður eigi gefið upp en þess má geta að það hefur aukist um 125% síðan upphafsinnlegg þráðarins var birt.
Ég býð nýjasta markaðsverð - 111,04 böggur.
Ég býð þér á barinn Vlad. Tilboð sem þú getur ekki hafnað!
Ég á 10 evru seðil.
Ég býð hann í dollarann þinn og fæ með einn kóbaltvarinn kastala og tímavjelina.
ég býð ævilangar birgðir af blút.................... og afganska mörgæs... á sýru.
Nei sko, haldið þið ekki bara að ég hafi fundið einn dollaraseðil í veskinu mínu. Þar situr hann bara hinn rólegasti og fitnar eins og púkinn á fjósbitanum! Ljómar upp
Vonandi færir hann veskinu mínu mikla lukku. Enn betra ef hann gæti haft góð áhrif á öll mín peningamál.
Ég býð nokkra upphæð, bundna í afar stöðugum serbneskum dínar. Einnig get ég boðið tékkneskt, búlgarskt, danskt, ungverskt og slóvakískt klink.
Ég býð þér að koma seðlinum í fóstur hjá mér án alls kostnaðar við þig. Ég skal hýsa peninginn leigulaust um ókomna tíð (eða þangað til ég kem honum í verð), mun ekki kosta þig krónu.
Vjer verðum því miður að hafna öllum framkomnum tilboðum. Lágmarkið sem vjer nefndum í innleggi voru kl. 13:43 í gær hefur nefnilega hækkað um 2400% síðan þá.
Ég á 10 evru seðil.
Ég býð hann í dollarann þinn og fæ með einn kóbaltvarinn kastala og tímavjelina.
10 evru seðill er nú enn dýrmætur...
Ég á 10 evru seðil.
Ég býð hann í dollarann þinn og fæ með einn kóbaltvarinn kastala og tímavjelina.
10 evru seðill er nú enn dýrmætur...
Þinn þó minna en evruseðill prentaður í Þýzkalandi.
Fyrir þennann ágæta seðil skal ég alfarið hætta að kalla þig krútt og ég mun ekki kjósa þig sem krútt ársins í væntanlegu kjöri fyrir árshátíðina.
Fökk! Ég var að fatta að ég á von á vænni ávísun í bandarískum dölum innan skamms. reynir að ákveða hvaða dal kaupa skuli fyrir dalina
Ég er milljónamæringur! Ég fann krukku með útlensku klinki! Verst að ég get ekki skipt því í banka...Starir þegjandi út í loftið