Sælir kæru félagar,
Hér á árum áður var ég hér virkur meðlimur og nefndist þá Hundslappadrífa í Neðra, margt hefur á daga mína drifið síðan ég viltist af braut og út í ögurlönd. Svo margt í raun að þegar ég bar augum hinar langþráðu hafnir Baggalútíu áttaði ég mig á að ég hafði gleymt lykilorðinu einhverstaðar miðja leið milli Lundúnía og Miklagarðs. Leitaði ég að skrifstofum Baggalútíska sendiráðsins en fann þær hvergi sökum mikilla umbóta og breytinga á útliti landsins.
Ég brá á það ráð að falsa skilríki og smygla mér hér inn undir fölsku flaggi í þeirri veiku von að félagar mínir frá í árdaga sæju á mér aumur og útveguðu mér lykilorðið langþráða nýtt eða gamalt. Annars verð ég líklega að bíta í það súra að vera hér í dulargerfi.
Með innilegri kveðju,
Mikið er gaman að sjá ykkur aftur,
Hundslappadrífa í Efra?
Hæ Drífa. Ljómar upp Gaman að sjá þig aftur hér hefur reyndar margt breyst síðan þú varst hér síðast því nú finnst mönnum skemmtilegast að drepa hvorn annan hér.
Velkomin aftur til baka Hundslappadrífa. Ljómar upp Ég hélt að þú værir farin fyrir fullt og allt.
Er búið að finna Baggasveininn? Forvitnast og hlakkar til að heyra svarið
Stefni á að klára það mál um leið og ég rata á skjölin mín um það mál. Margt og mikið sem ég skildi hér ólokið eftir. Og margt sem ég á eftir að segja ykkur af ferðum mínum.
Já og þakka ykkur svo innilega fyrir þessar hlýju móttökur Gefur frá sér vellíðunarstunu
Þú ættir kannske að senda Enter einkapóst og athuga hvort hann geti ekki reddað þér nýju lykilorði... velkomin til baka...
Starir þegjandi út í loftið
Starir þegjandi út í loftið
Hún er þarna efra... bendir
Mælir þú heilastur Skabbi, ég var einmitt að reyna að muna hver væri vandræðaleysarinn mikli... geri það og spjalla hér á meðan bara.
býður öllum upp á ótæmandi kút af Sýflískum Sólskinssafa xT
Lát heyra. Kemur sér vel fyrir, tilbúin að hlusta á ferðasögur Drífu
Snakk og salat? Útbýr grískt fetasalat með ólífuolíu, sítrónu, pipar, salti og lauk. Tómötum, ólífum og fetaosti Setur snakk í aðra skál, fyrir þá sem það vilja
Úfff ja frá mörgu er að segja og myndi mér ekki endast kveldið til, ég er örmagna eftir ferðir mínar og að verða heldur málhölt af þreytu. Starir þegjandi út í loftið
Vaknar af hugsunum sínum og þiggur smá sallat og drekkur með
Mikið er þetta gott hjá þér. Á ég að hella í glas fyrir þig líka?Glottir eins og fífl
Já takk Drífa xT í grænu fyrir þér!
Ó já hér ríkir vargöld núna. Menn maffast og hengja og drepa miskunarlaust til að lifa af sjálfir.
Ja,fjárinn á röndóttum brókum, það er sem sagt af sem áður var er bróðernið sveif yfir vötnum hér? Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ó já. Hér er allt í hershöndum . En láttu okkur nú heyra um ljósið sem þú hefur upplifað, það varpar ef til vill birtu inn í þetta grábölvaða morðóða illskusvæði.
Samt, getum við alltaf fundið okkur tilefni til að ljóma upp og knúsa Ljómar upp og knúsar
Sæl skvís!
Það var mikið að þú lætur sjá þig! - og núna er uppi á þér.. eða þú veist.
Vandkvæðastunur skyldi ritað í einu orði.
Ég hef ekki annað málefnalegra fram að færa hér. Afsakið.
Ja,fjárinn á röndóttum brókum, það er sem sagt af sem áður var er bróðernið sveif yfir vötnum hér? Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hjer er reyndar bróðerni að mestu nema í mafíuleiknum. Að því sögðu bjóðum vjer yður formlega velkomna til baka og sjáum eigi ástæðu til að þjer farið gegnum nýliðahliðið.