Klórar sér í höfðinu
Er þetta þá þráður fyrir þá sem ekki koma ?
Já. Þið úglendingarnir getið verið hér með ykkar svartagallsraus og kvabb. Lætur rigna upp í nefið
Beinir brunaslöngu að nefinu á Þarfa
Verður afskaplega illt í nefinu allt í einu
Vjer dönsum eigi.
Stelpur dansa !
Þá hlýt ég að teljast til karlmanna.
Vonum bara að það myndist ekkki dansmanía eins og gerði hér eitt sinn fyrir nokkur hundruð árum, þegar fólk á meginlandi Evrópu dansaði eins og það ætti lífið að leysa. Það dansaði á milli bæjarfélaga, svo dögum skipti, sumir þangað til þeir duttu dauðir niður.
Þá yrði hálf tómlegt hér á lútnum held ég eftir það.
Var þetta þegar What Is Love? kom fyrst út?
Dansar eins og Kevin Bacon í Footloose
Tekur til við að tvista
Verður ekki dömufrí? Svipast um eftir Sundlaugi
Ertu að segja að ég sé ekki dama? Strunsar afar dömulega út af sviðinu, með nefið upp í loft, og skellir afar dömulega á eftir sér
Þar sem ég er svo lítil dama í mér og algjör aukvisi þegar kemur að hinni íslensku tungu þá verð ég bara að kasta þessu fram og játa fávisku mína. Hvað þýðir dömufrí?
Þá mega dömurnar bjóða upp. Í árdaga þótti það passlegt að hafa um það bil tvo dansa á hverju dansiballi þannig.
Núúúúúú. Svoleiðis!
Ljómar upp
Þá hef ég oft tekið þátt í dömufríi.
Drífur sig að setjast niður svo dömurnar geti boðið honum í einn frían dans