Bíður enn við pósthólfið
Vjer höfum því miður enn ekkert fengið enda aftarlega í stafrófinu Rannsakar pósthólfið samt vandlega til öryggis.
Vjer verðum þó að hryggja yður með því að það er þýðingarlaust fyrir yður að senda oss ástarbrjef nema þjer sjeuð kvenkyns. Nú kann að vísu vel að vera að þjer sjeuð kvenkyns en hafið með snilldarlegum hætti náð að dylja yðar raunverulega kyn hjer og á það sem vjer sögðum hjer að framan þá að sjálfsögðu eigi við - eru í því tilviki öll ástarbrjef vel þegin.
En þar eð oss finnst flest benda til að þjer sjeuð í raun og veru af því kyni sem þjer lítið út fyrir að vera af töldum vjer nauðsynlegt að taka þetta fram ef það gæti orðið til að spara yður vinnu við sendingu ástarbrjefa.
Ég held að Herra Forseti er að biðja um bréf og vill fá forgang fram fyrir aðra framar í stafrófinu
Ég var að senda honum Clark Kent nokkrar línur svo nú fer að styttast í að allir fái póst
Leggur sig í póstkassanum
Ég var að senda honum Clark Kent nokkrar línur svo nú fer að styttast í að allir fái póst
Þá eru enn 79 eftir áður en röðin kemur að mér. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þegar þú segir allir meinarðu þá heimavarnarliða með og án mynda?
Auðvit fá allir sinn skerf hvort sem maður sé eins og þú fríðust meya eða bara líti út eins og stórt spurningamerki í framan
Fer í fuglaskoðun og sér bréfdúfur sveima um alla Gestapó og hrynja niður úr ofþreytu
Bréfdúfnastofninn virðist vera í útrýmingahættu, allavega er stofnstærðin að hrynja niður.
Býr til bréfdúfnagúllas
Býður sjálfum sér í gúllas
Viltu gjöra svo vel að rétta saltið Skabbi.
Klárar gúllasið með Skabba og tangar úr tönnunum með tunnustöfum - ropar
Skál fyrir bréfaskriftum GEH! Býður öllum krækiberjasnafs
Þegar þú segir allir meinarðu þá heimavarnarliða með og án mynda?
Auðvit fá allir sinn skerf hvort sem maður sé eins og þú fríðust meya eða bara líti út eins og stórt spurningamerki í framan
Ég bíð þá bara róleg og held mínu striki fram yfir áramót.
Kíkir ekki í pósthólfið, en skrifar minnismiða um að kíkja í pósthólfið upp úr áramótum
Ég elska þig GEH
Ég elska þig líka Salka mín . Það er því með sorg í hjarta sem ég nóterar að þú heitir svo . Nafnið er fínast allra enn liggur aftarlega í stafrófsröðinni Þínn tími kemur , því þolinmæði þrautir vinnur allar . Cirkus um miðjan febrúar færðu rafeindakossinn frá mér . Biðinn í gluggkistu haustsins og einmannaleikur snjókornana sem falla á frostrósugar kinnar þínar og saknaðartárinn grílukertinn þiðni og forsandi ylur vorsins sem sendiboðar kærleikann . Salka mín
Finnur áfengisdauða dúfu í póstkassanum
Losar bréfið af öðrum fæti dúfunnar
Les
Elska þig líka elsku Gautabúinn minn!!
Sér dúfu í fjarska fljúga skrykkjótt en markvisst í átt að pósthólfi sínu.Grípur dúfuna á flugi rétt áður en hún klessir á vegginn fyrir ofan pósthólfið og losar bréf af fæti hennar.Les bréfið og roðnar mjög.Hripar niður svar, gefur dúfunni ákavítissopa og sendir hana til baka.
Bíður þolinmóð enda nánast aftast í stafrófinu
Bíður líka, samt ögn óþolinmóðari en Tigra