Alsneitt.
Létt af Höttu töltir Týr,
týnist leynibakkinn.
Í Víkurlækinn veltur fýr,
votur situr hnakkinn.
Næst: # 20 Frumsamframsneitt, síðframsneitt.
20 Frumsamframsneitt, síðframsneitt
Lastasysta köld sem kýr
kallar milli mjalta.
Hestakostur heldur rýr
hross í kassa salta.
Næst: #21, Fráhent
Er þessi síðasta vísa frumsamframsneidd?
Ég velti þessu lengi fyrir mér og áttaði mig á að tvö fyrstu orðin í í frumlínum (1. og 3.) eru sniðrímuð, öll fjögur. (Vonandi nota ég rétt orð um þetta.)
Rétt hjá þér... reyni að laga þetta... xT
21 Fráhent
Fer af náð um fold og láð
finnur lykt af töðu
Karlinn Gráni knapa án
kroppar út í hlöðu
Næst 22. Skáhent
Hölkn og grjóti mædd í mót
má öll kláralestin.
Þeir sem geta fara fet.
Fóður- þynnist -restin.
Glæsilegt Blöndungur... velkominn til leiks...
p.s. næst er 23. Þríkveðið Oddskipt
Klárinn ríð og köld er tíð
kælir hríðin fangið.
Strönd við skör ég iða ör
ilmar fjöruþangið.
Næst: 24 Frumstiklað Stikla
Éta hestar moð og mest
mygluheyjaleifar,
allvelflesta úr fjósi rest,
fyrningar og dreifar.
Næst er þá #25, frumstiklað, skárímað.
25 Frumstiklað, skárímað.
Í skapi þrár, ei þótti frár,
þungt var hljóð í spori.
Ei var klárinn etinn hrár
allur hörðu'á vori.
Næst er það þá 26, frumstiklað og síðhent.
26, Frumstiklað, síðhent
Upp við fossa fældist hross
fagurskjóttur klárinn.
við morgunblossans bjarta koss
brast á flótta árinn.
Næst: 27, Frumstiklað, síðframhent
27 Frumstiklað, síðframhent
Hryssan elding hún er geld
hlíðar blíðar kveður.
Hennar seldi allan eld,
engan lengur gleður.
28 Frumhent
28 - Frumhent
Truntan mín fer furðufrísk
fetið upp á tinda.
Spora fín, en spretta nísk
spök við gnauðið vinda.
Næst: 29 - Frumhent, frumaukrímað
Leiðrétt lítillega eftirá
Minn er jórinn frár á fæti
og flýgur yfir hæðir
Kneyfa bjór í klárasæti
er klárinn blíður flæðir.
Næst er nr. 30, frumþráhent.
(Nú má e.t.v. breyta lítillega um yrkisefni.)
Slíkt var sundrað kyrrðarkvöld,
klettar tóku undir,
líkt og hundrað- hópreið -föld
héldi þar um grundir.
Næst: #31, Víxlhent.
Bak þitt snjallt ég bregð mér á,
besta merin fríða;
leikur allt í lyndi þá.
Ljúft er þér að ríða.
Næst: 32 - Víxlhent, frumaukrímað - Fléttubönd
32 - Víxlhent, frumaukrímað - Fléttubönd.
Glumdu brekkur, glóði brá,
glatt og létt var sporið.
Enn hann stekkur stóði frá,
stiklar þétt um vorið.
Næst: 33 - Víxlhent, hályklað.
33 - Víxlhent, hályklað.
Huggun bezt og heldur frá
Heljar-stefnu anda:
Rugguhesti´ að ríða á
röskt til svefnins landa.
Næst: 34 - Frumaukrímað.