Þetta var nú ljóta þjöfulsins svindlið og svínaríið! Að boði ritstjórnar gerði ég eftirfarandi:
1. Vaska upp * Búið
2. Semja við ljósmæður * Afgreitt. Þær lofuðu að fara að vinna og ég myndi hætta að senda þeim þessar myndir.
3. Sækja um Evrópusambandsaðild * Búið - Þeir skelltu á mig bölvaðir
4. Komast að því hvernig Lost endar * Búið - nákvæmlega eins og síðast
5. Finna út hvar Linsey Lohan verður á morgun * Búið
6. Þrífa baðið * Fékk nú fólk í það, en búið
7. Smakka krókódíl * Búið
8. Byrja að reykja * Búið
9. Fara í sleik við ókunnugan * Búið - hann brjálaðist en mér skilst að þetta sár grói
10. Stela húfu af löggu * Búið
11. Skrifa um yfirvofandi heimsendi í blöðin * Búið
12. Byrja að blogga * Búið
13. Pissa * Búið
Að auki ákvað ég að hella í mig ómældu magni brennivíns og taka á móti heimsenda þessum í miðju partýi og hafa bara gaman af. Og hvað gerist? Enginn heimsendir - og ég þunnur!
Endalaus svik og undirferli alltaf hreint.
Gamalt finnskt spakmæli segir að ekki kemur að heimsendum eins lengi og "myllurnar mala og typpin standa".
Jah, það er nokkuð til í því. Ég á allavega bágt með að ímynda mér hóp af karlmönnum bíðandi eftir heimsendi - með standpínu!
fitlar við sig