Er ekki hægt að fá þessum menníngarsnauða þræði eytt, svo að augu manns storkni ekki af viðbjóði yfir því að fólk skuli fá það af sér að fylgjast með botlabarningi, og viðurkenni það í þokkabót?
Ég get vel viðurkennt að ég hefi þokkalega gaman af tuðrusparkinu, svona eins og hver annar meðal Jón. En að vera að troða þessum andskota hér inn á okkar guðdómlega Gestapó þykja mér vera helgispjöll. Allir hluti eiga sinn stað og sína stund og mér finnst það alls ekki vera viðeigandi að draga mann frá bjálfaboxinu, í blettóttum netabolnum, með þetta blæti hingað inn. Það er verra og síður viðeigandi, heldur en lýsingar á kynlífi Nermals...
Án knattspyrnu er engin menning.
Haldið ykkur við efnið. Annað hvort lofið þið Liverpool í hárstert (eins og þeir eiga skilið) eða verið úti.
Arsenal mun eiginlega éta allt sem að þeirra kjafti kemur þetta tímabilið.
Þ.m.t. sína eigin leikmenn. Ekki vænlegt til vinnings myndi ég halda.
Ég hef nú aldrei haldið sérstaklega með Grúttyrningum. Nema þegar þeir spila við helvítis Karlbrystingasamsteypuna. Maður heldur með öllum gegn þeim blöðrum.
Ég held að þessi oftálgaði franski lúði eigi eftir að kafna endanlega á eigin framburði og koma þessu Arsenal liði í gröfina. Þar sem það á heima.
Ég held að þessi oftálgaði franski lúði eigi eftir að kafna endanlega á eigin framburði og koma þessu Arsenal liði í gröfina. Þar sem það á heima.
Merkilegt að enskukunnáttu þessa franska vælukjóa skuli ekki hafa farið fram á þessari eilífð sem hann hefir stýrt Arsenal.