Það var eitt sinn sjómaður á lítilli skekktu á veiðum, þegar það gerði skyndilega mikið óveður. Hann ákvað að halda heim á leið og byrjaði að róa í átt að landi. Þegar hann nálgaðist land sá hann að hann var búinn að reka af leið og lending ótrygg, enda brimið orðið ískyggilegt. Hann sá hvar eini möguleikinn á lendingu var milli skerja nokkurra, en til að komast á milli þeirra myndi hann annað hvort þurfa mikla heppni eða kraftaverk. Í örvæntingu sinni fór hann með sjóferðarbænina í huga sér og tók síðan til við að róa hvað af tók. Þegar hann nálgaðist skerin virtist sem brimið væri að lægja og hann hugsaði með sér að nú væru æðri máttarvöld honum hliðholl. Hann færðist nær og nær og þegar hann var kominn framhjá fyrsta skerinu virtist sem leiðin væri greið. Skyndilega reið yfir hann mikið brot og báturinn kaffærðist og sökk. Sjómaðurinn reyndi hvað hann gat að halda lífi, en að lokum þraut hann kraftur og hann dó.
Af hverju er ekki hægt að segja með fullvissu að þessi saga sé sönn?
Svarið er einfalt...reynið nú.
úr því að maðurinn dó hver var þá til frásagnar um forsöguna? Þórhallur miðill?
Hristir hausinn
Ohhh, ef ég hefði verið 10 mínútum fyrr á ferðinni þá hefði ég getað komið með þessa sára-einföldu lausn. En já, þar sem hann framkvæmdi hlut sem hann einn gæti vitað, þ.e.a.s. fór með bæn, þá getur þessi saga tæplega verið nákvæmlega sönn.
-
Úff, eldsnemma á fimmtudagsmorgni. O jæja, ætli maður hafi ekki gert annað eins. Skál.
Fær sér vænan sopa af viskí, að hætti séntilmanns
-
Ég ætla rétt að vona að þetta sé skoskt hálandaviskí en ekki eitthvað bandarískt sull!
Ahhh, það hlaut að vera, ég var einmitt að velta því fyrir mér hvaðan ég kannaðist við bragðið. Og nú man ég það. Við drukkum þetta oft á Eiðum '67 þegar við vorum að taka Müllersæfingarnar á morgnanna. Þá voru nú mörgum flöskunum gerð góð skil.
-
Tíminn líður áfram þegar maður hefur bergt á slíkum guðaveigum!
Heyrðu... áttu nokkuð klaka út í?
hleypur út í frystikistu og nær í ferskann og svalandi klaka
Hleypur út í útbrotum og nær í lærðan og margfróðan lækni
Æji, ég hlýt að hafa látið þig fá glas af koníakinu með sojasósunni í, kemur alls ekki vel út...biðst afsökunar...hérna er annað glas af viskí í sárabætur
Hleypur út í útbrotum og nær í lærðan og margfróðan lækni
Læknisfræðilegt ráð: Hafðu engar áhyggjur þetta er ekkert sem dugleg viskídrikkja lagar ekki.
Viltu gjörasvovel og láta mig í friði Limbri skrækir og slær frá sér
hleypir upp þingfundi og stendur fyrir óspektum og fær sér koníak