Undirbúningur - eru það ekki nærföt?
Jubb, akkúrat það sem ég átti við.
Kommandóar undirbúa aldrei neitt, nei.
Allir að mæta án undirbúnings á árshátiíðina semsagt. Glottir eins og fífl
Þér myndi sum sé ekkert mislíka það.
Þá eru nú meiri líkur á því að ég mæti án undirbúnings heldur en á undirbúningnum einum.
Hmm.... var ekki einhver einmitt laminn í fyrra?
Sloppur ef ég man rétt?
Árásarmaðurinn var þó ekki Gestapói ef ég, sem áður, man rétt.
Svo má líka skoða enn aftar í tímann. Hugtakið sleif kemur upp í hugann - þó ekki kakósleifin mín.
Nákvæmlega! Hvar eru þeir bræður?
Verst að sleifar hafa verið harðbannaðar á árshátíð eftir þetta.
Nema Hexia er með sérlega undanþágu, auðvitað.
Að sjálfsögðu.
Annars, til upprifjunar:
Takk, takk - ég þurfti samt ekkert að hafa fyrir þessu, þar sem ég bjó það til fyrir árshátíðina í hitteðfyrra. Endurvinnsla er góð.
Flissar
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið En svona fyrir okkur "nýliðana" hvað er málið með sleifina?
Oh nú svíkur minnið mig... Lærði Geoff og hver?
Alla vegana þá var sleif með í för og var óspart notuð á afturenda ákveðina kvenkyns Gestapóa!
Nornin þurfti á einum tímapunkti að hlaupa undan honum í dragsíðum ballkjól og sparka af sér hælaskónum til að komast hraðar yfir Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Já minnið svíkur mig líka, ég get ómögulega munað hverjir höndluðu sleifina þetta örlagaríka kvöld.
Hitt man ég þó, að við Nornin og Z.Natan fórum í rjómaleiðangur til að geta fengið hvítan rússa á barnum. Þegar við komum til baka, með rjómann, kom svo í ljós að ekkert var kahlúað!
Hexia mín, ætlaru að mæta með sleif þetta árið?