Já, það var hann. Skil það eftir opið ef einhver skyldi slysast hingað inn.
Hvert er nafnið?
Í gullsmíðinni góður er.
Gallað var hans púðager.
Þráir fransbrauð, því er ver.
Þessi titil drottins ber.
1. Jens gullsmiður
2. ?
3. Jens persóna í barnaleikritinu Karíus og Baktus.
4. ?
Billi og hlewagestiR réðu gátu mína rétt.
1. Reit um veru í handanheim.: Toni Morrison höfundur "Ástkær"
2. Hann söng "Ástar strætis" breim.: Jim Morrison söng "Love street".
3. Kani er gerði rafmagnsreið.: William Morrison.
4. Rokkið söng með "Þeim" um skeið.: Van Morrison söngvari "Them".
Ég læt ekkert uppi fyrr en menn koma með a.m.k. þrjár skýringar. Ja, nema enginn svari í tvö ár, eins og við hefur viljað brenna.
1. Jens gullsmiður
2. Brjóstapúða-Jens.
3. Jens persóna í barnaleikritinu Karíus og Baktus.
4. ?
Já, þá er bara sá eini eftir sem er svo augljós að ég er eiginlega búinn að gefa hann upp.
1. Jens gullsmiður
2. Brjóstapúða-Jens.
3. Jens persóna í barnaleikritinu Karíus og Baktus.
4. Jens Kr. Guð - poppfræðingur og Færeyjavinur
Jens Guð? http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/
Jens Guð? http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/
Já, sá er maðurinn
Jamm, þú varst aðeins á undan mér.
Jú jú, Jens Guð, auðvitað.
Næst er það:
Kotbarn heimsfrægt Kansas frá.
Kynslóð tvö á fréttaskjá.
Þel sitt allgott þylja má.
Þóttist miðill, hlekkist á.
1. ?
2. Lára Ómarsdótti. Dóttir Ómars Ragnarssonar..
3.?
4. Lára Ágústsdóttir miðill.
Enn þrjóskast ég við að segja neitt fyrr en nefndir eru a.m.k. þrír því um það er beðið.
1. Laura Ingalls var hún ekki í "Grátið á gesjunni"?
Jújú, þá vantar bara nr. 3.
Er ekki einhvur Lára fatahönnuður? Rúnars?
Annars hélt ég að þetta væri Dóra (Dóróthea).
Billi virðist vera að slysast á það sem heitir rétt ályktun dregin þrátt fyrir rangar forsendur. Fylgjast menn ekki með menningarstraumum hér á Póinu?
Jú, en eingöngu hér á póinu. Fer ekkert út fyrir það.