Þetta er líklega bara alveg rétt hjá þér, Golsi, en ég var reyndar með tékkneska fjölteflisfræðinginn Vladimir Hort í huga. Einhverju sinni setti hans heimsmet í fjöltefli í Reykjavík. Ég veit þó ekki hvort það met standi enn. Trúlega ekki.
Og nú gúgla ég það að mannfjandinn heitir víst Vlastimil en ekki Vladimir. Þannig að þú reddaðir bara gátunni minni með þessu!
Afturgenginn örkumlafóli.
Embætti var sviptur karl.
Fyrirmynd í Frostaskjóli.
Felldi kappann Aðils jarl.
Afturgenginn örkumlafóli.Þormóður í Gvendareyjum?
Embætti var sviptur karl.
Fyrirmynd í Frostaskjóli.Móði, Þormóður Egilsson
Felldi kappann Aðils jarl.Júdókappinn?
Afturgenginn örkumlafóli. Þórolfur bægifótur (gúgglaður......)
Embætti var sviptur karl. Þórólfur borgarstjóri Árnason (sagð'ann ekki af sér sjálfur?)
Fyrirmynd í Frostaskjóli. Þórólfur Beck - var hann ekki KR-ingur?
Felldi kappann Aðils jarl. Þórólfur Skallagrímsson
Afturgenginn örkumlafóli. Þórolfur bægifótur (gúgglaður......)
Embætti var sviptur karl. Þórólfur borgarstjóri Árnason (sagð'ann ekki af sér sjálfur?)
Fyrirmynd í Frostaskjóli. Þórólfur Beck - var hann ekki KR-ingur?
Felldi kappann Aðils jarl. Þórólfur Skallagrímsson
Hér er allt rétt. Hvað Árnason varðar þá eru reknum stórbokkum yfirleitt leyft að segja upp sjálfir, svona að forminu til.
Þá er það ný, einmitt í tæka tíð ...
Kommúnista kappi þekktur.
Kauði stýrir höfuðborg.
Af Bakkusi hann býsn var hrekktur.
Bók hann mikla reit um sorg.
Þarfagreinir af öllum!
Annars hef ég bara rökstuðning á 2 línum svo ég segi það ekki.
Þess eru dæmi að menn gangi undir ýmsum nöfnum. Þannig er um gaurana hér í fyrripartinum. Þeir eru þekktir undir nöfnunum sem þarna koma fram en líka því sem spurt er um. Rétt er að taka fram að hér á ég ekki við fyrra og seinna skírnarnafn, ég hef haft það fyrir venju að spyrja ekki um seinni skírnarnöfn enda er ég frekar á móti þeim.
Þetta er sum sé venjuleg fjórmenningagáta.
Jakob hét hann, Ólafs arfi.
Árni, sonur Gunnars þar.
Landnám hafði hann að starfi.
Hirti um bensínstöðvarnar.
Ég átta mig ekki á kommanum, allir gerskir Borisar sem ég man eftir eru a.m.k. gengnir úr skaftinu.
En ég er með þrjá og má því svara:
Kommúnista kappi þekktur.
Kauði stýrir höfuðborg. - Boris Johnson, borgartjóri Lundúna.
Af Bakkusi hann býsn var hrekktur. - Борис Николаевич Ельцин stýrði Rússíá eftir afkommnun en var heldur blautur.
Bók hann mikla reit um sorg. - Бори́с Леони́дович Пастерна́к, sá er reit um Доктор Живаго
Afsakið besserwissismann en rímið er skrítið hér.
Þökk þér, búinn að laga.
Gæti ekki verið sama svar við línu 1 og 3 hjá Þarfagreiningarmanninum
Hugsanlega, Élli var jú kommi áður en hann afkommaðist.
Þetta er nú bara hárrétt hjá eiturgræna jíhadistanum.
Kappinn í fyrstu línunni er annars ekkert sérstaklega þekktur sem kommúnisti, heldur frekar sem fulltrúi Sovétríkjanna/kommúnismans á ákveðnu afrekasviði.
Spassky? Hann er reyndar líka afkommaður.
Jamm. Þá er gátan fullleyst.