Vjer erum að fara að endurræsa ofurtölvu forsetaembættis Baggalútíu. Mistakist það birtumst vjer eigi á ný eftir nokkrar mínútur.
Ég er að fara að baka.
Ættingjar kallsins að kíkja í heimsókn. Veit ekkert hvort þau stoppa, en eitthvað verður að vera til að bjóða fólkinu fjandinn hafi það. Þetta heimili skal ekki vera þekkt fyrir annað.
Ég er að fara að dáðst að LL fyrir að nenna að baka. Svo ætla ég að ráfa aðeins um húsið og býsnast yfir bakkelsisleysi hér á bæ.
Ég er að fara að reyna að klára bók sem hefur setið ókláruð á hakanum af því ég þurfti alveg bráðnauðsynlega að klára nokkrar aðrar bækur.
Ekki neitt. Ég ætla að njóta þess.
Skola tebollann minn.
Klára fyrsta námskeiðið í vetur. Ljómar upp
Læra.. Starir geispandi út í loftið
Mála 1 vegg í stofunni. Og hlusta á tónlist á meðan. Ljómar upp og niður
Hengja upp þvott. Jei!
Ég er að fara með næsta flugi til Frakklands að drepa Thierry Henry.
Ég er að fara til Frakklands sem lífvörður hans þarna misskilda handboltamannsins sem Gretzky er svo illa við. Kannski maður geri jólainnkaupin í leiðinni. Ljómar upp
Ég er að fara að leggja af stað á tónleika.
Ég er að fara að leggja af stað á tónleika.
Ég líka - á hvort eð er eftir að matast fyrir kvöldið. Get kíkt á téða tónleika í leiðinni.