Vísindameistarar Baggalútíu!
Benda ekki allar rannsóknarniðurstöður til þess að hátt hlutfall kóbalts í móðurmjólk bæti málvitund barna síðar á lífsleiðinni?
Benda...rannsóknarniðurstöður til ?! Hverskonar vantrú er þetta á vísindarannsóknum ? Þær sanna þetta ! Sanna þetta alveg 100% Sýpur á fagurbláum nánast ógegnsæjum drykk, strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér.
Þá má taka það fram að kóbaltið þarf alls ekki að koma með mjólkinni sjálfri. Í lagi er að dýfa snuði reglulega í kóbalt-vatnslausn og hefur það sambærileg áhrif.
Að endingu er líklega rétt að taka það fram að móðir mín er lesblind og ég fékk kókómalt en ekki kóbalt sem barn... enda tala ég eins og raun ber vitni.
Dæsir og þvaðrar eitthvað óskiljanlegt (eins og svo oft áður)
-
Einnig þykir æskilegt að horfa á kóbalt reglulega til að bæta sjón
Þetta vissum vjer eigi Horfir á kóbaltið frá árshátíðinni og finnur strax breytingu til batnaðar.
Fyrir nokkrum dögum rakst ég á lúxusjeppa sem var merktur Cobolt, var það forsetabíllinn? Það er ekki þægilegt að rekast á svona stóra bíla..
Nei, forsetabíllinn er skriðdreki og þar af leiðandi miklu stærri.
Nú er komin á markað málvitundarpilla!
Ljómar upp
Komið er á markað nýtt íslenskt fæðubótarefni, HAFKALK, sem unnið er úr kalkþörungum úr Arnarfirði. Kalkþörungarnir innihalda u.þ.b. 30% kalk og 2% magnesíum og stein- og snefilefni eins og járn, sink, selen, kalíum, mangan, joð og kóbalt.
Ljómar upp
Sem barn drakk ég eitt sinn þynntan blómaáburð í misgripum fyrir vatn. Í blómaáburði eru einmitt öll helstu snefilefni sem mannslíkaminn þarfnast (fyrir utan selen). Þ.á.m. kóbalt, er ég viss um. Af þessum sökum varð ég mun gáfaðaðri en ég á eðli til - sjáið t.d. bróður minn, hann Möndlung; alger klaufabárður, enda lét hann sér nægja að sleikja saltsteinana hjá kúnum til þess að ná sér í snefilefni en gleymdi að huga að kóbaltinu.
Enda svosem ekkert að því, í sjálfu sér. Ef hann hefði farið að sleikja kýrnar þá hefði ég haft meiri áhyggjur af honum í þínum sporum.
Nú er komin á markað málvitundarpilla!
Ljómar upp
Komið er á markað nýtt íslenskt fæðubótarefni, HAFKALK, sem unnið er úr kalkþörungum úr Arnarfirði. Kalkþörungarnir innihalda u.þ.b. 30% kalk og 2% magnesíum og stein- og snefilefni eins og járn, sink, selen, kalíum, mangan, joð og kóbalt.
Við skegg spámannsins!