— GESTAPÓ —
Vambanfjall, Suður-Dakótafylki BNA, 1. áfangi
» Gestapó   » Almennt spjall
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Goggurinn 1/7/09 00:44

http://baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=9994

Á þessari slóð má finna samning milli okkar Vamban. Samningur sá felur í sér sölu sálar minnar til mín aftur, en sál mín hafði verið í eigu hans í háa herrans tíð fram að því. Eitt atriði í þeim samning var það, að andlit Bandaríkjaforsetanna fjögurra, sem prýða Rushmorefjall í Suður-Dakótafylki Bandaríkjanna, skyldu verða afmáð og í staðinn myndi koma andlitsmynd af Vamban, auk annara lögráða einstaklinga. Fyrsta áfanga þessa verks hefur loksins verið lokið og má sjá árangurinn hér.

Jæja Vamban, farðu nú að láta sjá þig aftur!

Goggurinn. Vandamálaráðherra Heimsveldisins og varaforsetaherra. Sendiherra Páskaeyju. Staðfestur og rykfallinn erkilaumupúki. Stoltur eigandi eigin sálar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Vamban birtist hér í mýflugumynd fyrir fáeinum dögum.

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Goggurinn 1/7/09 00:50

Svona eins og ég þá?

Goggurinn. Vandamálaráðherra Heimsveldisins og varaforsetaherra. Sendiherra Páskaeyju. Staðfestur og rykfallinn erkilaumupúki. Stoltur eigandi eigin sálar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Ja, jafnvel minna því hann tjáði sig ekkert. ‹Starir þegjandi út í loftið›

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/7/09 00:56

Loksins verðugt verkefni á vegum baggalútíska heimsveldisins ‹Ljómar upp eins og 1.000.000 MW plútóníumljósapera og sjer í draumsýn fyrir sjer röð fagurgrænna Gestapóa á Rushmorefjalli›.

Tengjast minnkandi kóbaltbirgðir forsetaembættisins að undanförnu þessu verðuga verkefni eitthvað ? ‹Ljómar upp›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 31/8/09 08:37

Hvur andskotinn og baðvatnið hans! Maður er í smá meðfer...sumarleyfi og þegar maður kemur aftur er búið að höggva ásýnd manns í heilt fjall!

Þetta hlýtur að kalla á ærlegt fyllerí gásir og melir.

Skál!

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 31/8/09 23:38

Verst fyrir þig hvað þú bliknar í samanburði við aðra á þessum kletti. ‹fær sér í nefið›

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 1/9/09 00:19

Ertu að meina að ég sé ekki jafn fjallmyndarlegur?

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 5/9/09 19:21

Kargur og Vamban báðir komnir með höggmynd af sér... en hverjir eru hinir?

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 6/9/09 01:51

Ég man ekki betur en séntilmaðurinn Herbjörn Hafralóns hafi verið mér við hlið á þessu meistaraverki. Hví var honum skipt út fyrir Vamban? Ekki það að Vamban eigi ekki skilið að vera þarna með okkur, en hefði ekki mátt fórna öðrum hvorum hinna?

Það held ég nú!
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: