Nú skulu menn spjalla hér almennilega!
Sumir málfarsfasistar segja að það eiga að skrifa alminlega en ekki almennilega. Þetta danska tökuorð hafi sum sé ekkert með menn, hvað þá al-menn að gera. Sjálfur er ég á því að tengslin við danska orðið hafi fyrir löngu rofnað og því sjálfsagt að stafsetja orðið eins og við skynjum það. Ég leiðrétti þetta því ekki í prófarkalestri.
Og hana nú, þarna tóks mér að breyta almennilegu spjalli í þras um stafsetningu.
Svo geta dyggir lesendur mínir hér á Lútnum velt fyrir sér hvað í skrambanum jafn innsláttarvilltur maður og ég er að gera í prófarkalestri.
Ég er allur maður. þannig að ég tel mig almennilegann.
Almennilegan. Með einu n-i. Stekkur hæð sína
Ég kom með smá sumar með mér frá Ástralíu, en það er enginn búinn að þakka mér fyrir það ennþá.
Best að ég fari bara strax aftur til baka. Pakkar í töskur
Er það þess vegna sem er svo hlýtt og gott jafnvel hér austan salts líka? Þú ert nú meiri öðlingurinn Billi minn.
Stekkur hæð sína Gefur frá sér vellíðunarstunu
Strokar út eitt ennErtu þá sáttur núna?
Algeg gg sáttur. xT
Svo geta dyggir lesendur mínir hér á Lútnum velt fyrir sér hvað í skrambanum jafn innsláttarvilltur maður og ég er að gera í prófarkalestri.
Nú spyr ég sem fávís kona, hvað gerði prófarkalesarinn ef einhver vogaði sér að rita rauðlituðu orðin sem eitt orð?
Ég kom með smá sumar með mér frá Ástralíu, en það er enginn búinn að þakka mér fyrir það ennþá.
Best að ég fari bara strax aftur til baka. Pakkar í töskur
Ertu til í að skilja sumarið eftir?
Segið nú eitthvað almennilegt um stafsetninguna mína.
Svo geta dyggir lesendur mínir hér á Lútnum velt fyrir sér hvað í skrambanum jafn innsláttarvilltur maður og ég er að gera í prófarkalestri.
Nú spyr ég sem fávís kona, hvað gerði prófarkalesarinn ef einhver vogaði sér að rita rauðlituðu orðin sem eitt orð?
Hann gerir ekki neitt minnugur þess sem hér segir:
Orðið jafn má finna í fjölmörgum samsetningum, yfirleitt með lýsingar- og atviksorðum. Slíkar samsetningar eru ávallt ritaðar í einu orði með eða án bandstriks: jafnauðvelt eða jafn-auðvelt, jafngamall eða jafn-gamall, jafngóður eða jafn-góður, jafnmikill eða jafn-mikill, jafnnauðsynlegt eða jafn-nauðsynlegt, jafnrétthár eða jafn-rétthár, jafnstór eða jafn-stór, jafnvel eða jafn-vel o.s.frv.
Þegar jafn jafngildir eins er heimilt að rita jafn laust frá atviksorðum og lýsingarorðum: Hann hefur aldrei verið jafn góður og núna.
Segið nú eitthvað almennilegt um stafsetninguna mína.
Alveg sjálfsagt. Eitthvað almennilegt um stafsetninguna mína.
Þegar jafn jafngildir eins er heimilt að rita jafn laust frá atviksorðum og lýsingarorðum: Hann hefur aldrei verið jafn góður og núna.
Hann hver?
Ertu góður í honum?