Tæla skammlaust fuglinn frá.
Fæla burtu veiði
sæla. Varla maður má
mæla fyrir reiði.
Reiði gjarnan liggur lágt
leiði labba kútur
seyði þessi hafa hátt
heiðni Baggalútur
Lútur geng um lendurnar
leiður Sif má blóta
allar skýt ég endurnar
í anda líka þrjóta
Þrjóta má hún fyrir mér
Ef það hennar vilji er,
Mikið að hún leyfi sér
Að arka um og vera ber
Berlega ég bagann sé
bætann engin lyf.
Að meig'ei fella fiðurfé
fyrir henni Sif.
Syfjulega set ég fram
Svar mitt hér að vanda,
Úti heyrist eitthvert þramm
Nú drykk ég fer að blanda.
Blanda skal og brugga sull
Braga krús úr þjórum
steypist í mig stuðlabull
strax úr línum fjórum
Fjórum konum sarð ég vel
Enga fann ég ljóta,
Safa á við haframél
lét upp í allar þjóta.
Þjóta ljótir þrjótar hjá
þráð af stuðlum gelda.
Skjót væri bót að skjóta þá
og skutla' í vítiselda.
Vítiseldar virðast mér
varla nógu heitir.
Þennan fyrir þrjótinn hér
þráð sem niður reytir.
Tólinu þú munda mátt
í meyjar faðmsins átt
taka konu svo í sátt
ég segi heldur fátt
frat er ei að freta dátt
fnykur bætir geð
þá er gott að hlægja hátt
og hnusa dáldið með
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Með þér Heiðar mundi una
mjög vel dátt -
prumpa glaður, pústa funa
og purra hátt.
Hátt hann þrumar helvískur,
hristist allt og nötrar.
Rýkur úr rassinum, reykvískur,
rifnuðu rumpsins fjötrar.
-
Dévaffið í morgun dó,
dagsins gleðipóstur.
Það var orðið horað hró,
hungursnepill mjóstur.
thoi Obbobbobb! Rangt upphafsorð. BP
Fjötrar þráðsins finnast mér
fara títt úr skorðum
keðju rjúfa raftar hér
með röngum fyrstu orðum
Orðum raða áttu hér
(ef ert að svara):
Byrja á því sem aftast er
í undanfara.
Undanfara opna ég
óbrýndu með saxi.
Þessi lína er þægileg.
Þú mátt núna lagsi.