Á þessari mynd sem fylgdi frétt hér á Lútnum er rangt farið með dýra tegund, það sem sagt er að sé salamandra, sem er froskdýr, er í raun Iguana eðla, sennilega Iguana iguana, græna iguana, vildi bara koma þessu á framfæri.
Ert þú að efast um heilaga Ritstjórn?
Getur verið að Fræið sé bara öfundsjúkt yfir því að enginn meðlimur flóru íslands er á nýja skjaldarmerkinu... er það möguleiki... ha... ha?
Þetta eru heldur ekki músarrindill, geit og húsfreyja. Þetta eru sendlingur, gnýr og Skúli Eggert Þórðason, skattrannsóknastjóri á dragkvöldi Menningartengsla Íslands og Tælands (MIT).
Já og Iguana er eðla, og þær eru skriðdýr.
Líka Skúli.
Ég hélt að þetta væri risaeðla þarna niðri í horninu til hægri.
Mér finnst nú bara verst að það sé einhver fjárans spörfugl þarna. Eftir langa setu arnarins í skjaldarmerkinu finnst mér komið að sundfuglunum. Ég vil fá önd í skjaldarmerkið!
Ég vil fá önd í skjaldarmerkið!
Sem minnir á að ÉG VIL FÁ ÖNDINA MÍNA AFTUR. Ég vil, já ég beinlínis vill, fá Jóakim Aðalönd hingað aftur.
Já það vil ég líka. Ég nenni ekki að vera eina öndin á svæðinu.