Hrýtur mög í svefni Sveinn
sveittur í drauma heimi.
Í vöku starfar hjarta hreinn,
hunda með fagurt teymi.
Teymisfundinn fer ég á
framtíð skal þar skoðuð.
Mun ég eflaust margt þar sjá
og mögnuð umbót boðuð.
Boðuð var á fóstru fund
frú af neðri bænum.
Í Fífilbrekku gróna grund
gæsluvöll hjá sænum.
Sjávarniðsins söngur kær
svefn hjá mörgum nærir.
Nokkrir kvarta nær og fjær
nætursvefnin ærir.
Ærir flesta orðagjálfur
alþingsmannvitsbrekka.
Það er eins og þyrstur kálfur
þegar hann vill drekka.
Drekkur Karl vodka voðalega
væri nær að þamba bjór.
Skelving mun hann Tátu trega
tíkinn burt frá honum fór.
Fóru margir illa er
auðmenn sjóðnum stálu.
Læddust um og léku sér
í leik á svelli hálu.
Á svelli hálu svikult reynist
að svífa á skautum blindandi.
Því enginn veit hvar vökin leynist
og voðaleg skrímsli syndandi.
Syndandi fullur bröltir hann heim
hausinn er þungur karl lúinn,
loksins er búið hið glymjandi geym
Gulli er þreyttur og mátturin búinn.
Lappi er svolítið tæpur héraðofan. Tökum enga sénsa...
Syndugur ég sjálfsagt er
sannlega & blauður;
augljóst, hvert ég ætla mér
er ég loks verð dauður.
Búinn, farinn, látinn laus;
líkaminn er auður.
Ekkert veit ég í minn haus,
enda heiladauður.
Búinn, farinn, látinn laus;
líkaminn er auður.
Ekkert veit ég í minn haus,
enda heiladauður.
Þetta finnst mér skemmtilegt xT.
Dauðinn söng mér sorgarljóð,
svona einhvern veginn:
Er ég hirði Íslands þjóð,
ósköp verð ég feginn.
Feginn ég að engan aur
öðrum manni skulda.
Er nú bara blankur gaur
búið féið dulda.
Duldar óskir vakna víst
vorið á næsta leiti.
Ærutobbi skondinn skýst,
skoðun egri breiti.
Breyti ég í tígul, tromp;
tek svo slag með spaða.
Lauf & hjarta, pragt & pomp !
Pass – nei, láttu vaða !
Með vaðið fyrir neðan nef,
nú, ef það finnst á hausnum.
Þegar ég hér stafla í stef,
stuðlum & höfuð...lausnum. & er virðingarvottur við Z. Natan
Leysum vandann lausnum með,
svo líki okkar vinum. -
Í fórn er best að brúka peð,
til bjargar okkur hinum.
Hinum megin Heljar er
-hurð ég er að banka.
Í taki sérðu sjúkan her
-sem menn gerðu blanka.
Andskotinn skal opna hér
þeir inni skulu ranka.
Ranka við sér þegnar þjóðar
þegar fjandinn tekur völd.
Reiðin vex þá óðar óðar
öll þá skrifum kröfuspjöld.