mótstjórann nú má ég vel
mæra harla lengi
brjálæðinginn bara tel
betri en aðra drengi.
Mótsstjóraskjall, takk og bless.
Rím og stuðla karlinn Kjatti
kann víst upp á tíu tíu.
Dreg ei meir úr mínum hatti,
mótið búið. Viu viu!
Virðast ekki viðeigandi
vesæl lofsorð sem ég kann.
Mikill fannst mér mótsstjórnandi,
mætan tel ég hann.
Ég þakka hlý orð í minn garð, knús! Og minni svo á að senn fer mótinu að ljúka. Seinustu forvöð að henda inn vísum ef þær leynast einhverstaðar.
Mótstjórinn á mærið hrós
mikið afar skilið.
Færir Andþóri rauða rós
rosabjarta (eins og ljós!)
Þá er þessu fyrsta hagyrðingamóti ársins formlega slitið. Þið eruð snillingar! Viu viuxT
Ef einhver er rétt að klára sína vísu þá má hann að sjálfsögðu henda henni inn þó mótið sé búið.
Takk fyrir, knús.
Ekki var ég á því sjör
(að) arka hingað með vort krot
mikið var þó mega fjör
meina bara ó mæ god
Bíður þess að byrji mótið,
belgir sig upp af eðalmiði,
vesenast með vísnadótið
og vandar sig með mannasiði
Mótið er ei hafið hér nú hundskist út
Fáið ykkur annan blút.
Drekk af stút
í sorg og sút
Jæja... fyrst Mófreður vill þjófstarta, þá er hér fyrsta efni kvöldsins:
1: Kynning og upptalning eigin ágætis
- í tilefni þess að allir í raunheimum virðast vera að bjóða sig fram til pólitískra starfa þá er ekki úr vegi að menn yrki einhvers konar framboðsræðu til embættis hér á Gestapó (Baggalútíu - þó alldrei séu í raun haldnar kosningar hér). Eru t.d. einhverjir sem treysta sér í að þjóna Baggalútíu betur sem forstjóri ÁTVB (Áfengis og TóbaksVerslun Baggalútíu)? Nýr Forseti (ekki setja mig á listann Vlad, þetta er bara hugmynd)...
P.S. Leyniefnið er kokteill kvöldsins...
Eftirfarandi drykki má nota að vild, ekki er nauðsyn að nota alla vökvana í kokteilinn og að sjálfsögðu má bæta við, því listinn er ekki tæmandi:
Appelsínusafa
Áka
Ákavíti
Balla
Ballantines
Berjasaft
Blút
Brennivín
Brennsa
Djús
El vínó
Eplasnaps
Gambra
Gin
Grants
Greip
Hreindýrið
Jägermeister
Jameson
Kakó
Kamparí
Kláravín
Kók
Límonað
Landa
Lýsi
Meistara
Mjólk p>
Mysu
Órans
Rjúpuna
Rósavín
Sjenever
Sjenna
Sjokkolað
Sprite
Spritt
Sprútt
Víti
Vodka
Best að ríða á vaðið...
1: Kynning og upptalning eigin ágætis
Eg er lítið alkabál
á því fjalli tróna
Fram nú býð ég bjálkasál
-Bagglýtískan róna.
Til starfa góðra stendur hér
stórkostleg von
Mófreður C. hann mættur er
Mýrkjartansson
Til starfa góðra stendur hér
stórkostleg von
Mófreður C. hann mættur er
Mýrkjartansson
Velkominn sértu vinur minn
vodkasjúss þú færð á kinn
djöfull góður drykkurinn
dansaðu nú enn um sinn
Lútsins þegnar, það er grand
og það er tákn um gæði.
Að kynna andans eldibrand,
Andþór hér í kvæði.
Er kjósa skal þá kjarnamenn
sem klókir segja sex
er mannabót og magnað senn
við Mófreð að setja X
Af öllum öðrum ber
með yfirburði mikla.
Fjandanum jeg fremri er
að fela púka (*) lykla.
(*) Laumupúka
Til starfa góðra stendur hér
stórkostleg von
Mófreður C. hann mættur er
Mýrkjartansson
Velkominn sértu vinur minn
vodkasjúss þú færð á kinn
djöfull góður drykkurinn
dansaðu nú enn um sinn
Þakkir hafðu, koss á kinn,
komdu með mér vinurinn
herbergið í hérna inn
hér er mun njótast drykkurinn.