Ota heitir haframjöl
hellt í box og sekki.
Áfengi er ekki böl
ef þú drekkur ekki.
,
Ekki verður fundar fært
fundarstjórinn týndur.
Rýnir inn um glerið glært.
gjaldkerinn yglu brýndur.
Brýnd er oftast egg á hníf
ef menn vilja skera.
Vilji menn fá vonlaust líf
er við því fátt að gera.
gera má sér góðan verð
og gæða súpu
ef að maður fer í ferð
og fangar rjúpu.
Rjúpan mín hún Ragnheiður
ropar mjög og fretar
meðan gildur gagnmeiður
gangveg hennar fetar.
Feta ost er furðulegt
fætur munu sökkva.
Nú er mér um tungu tregt
týru fer að slökkva.
Slökkva vil á týru trekkt
töfra logs fram blástur.
Drungaleg er mirkurs mekt,
morgunroðinn skástur.
skástur þykir þessi ostur
þjóðar besti kostur.
Mjólkurvörur mestra gæða
mysan sú sem fær að flæða
Flæða umm stræti túm og torg
tugir óðra nauta.
Upp þau reka ofboðs org,
orsök,bíll að flauta.
Flautaþyrlar fjármagnsins
fela skuldaslóðina;
drullug hjólför dárvagnsins.
Djöflar hirði þjóðina.
Þjóðin beðið hefur hnekki -
á hæsta stig.
Og hagfræðingar hafa ekki
hægt um sig.
Sig er betra en banvænt hrap,
björgin marga hremma.
Gróði snýst í tjón & tap;
töluverð dílemma.
dílemma og djöfuls klemma
dauðinn allt má skemma
fjandinn mig má fanga snemma
fyrst þá allt mun stemma
Stemma vil ek ljóð og lag
lífsins fögru sögu.
fyrir þennan dýðar dag
dreyminn geri bögu.
Bögu vildi yrkja hann,
svaka góða vísu.
En þegar hann át úldinn þorsk
langaði hann mest í ýsu.
Glottir eins og fífl
Þrátt fyrir skemmtilegan hakabrag Frosksins held að það sé vísast að hoppa yfir hann
Bögu orti Bósi
blautleg þótti sú
(ferskeytlu úr fjósi
um fjósamann og kú).
Á kú og ýsu kjammsa má,
ket er flestu betra.
Kerskur tölu fletti frá,
fyrir leggst ég rúmið á.
Enda tylfta tveggja vetra.
(Í) vetrar kulda vænast er
(að) verma sig með blúti
(og) yrkja ljóðin einhver hér
inná baggalúti