Segja vil ég vertu hæg
vinan besta Kata.
Þú sagðir ekki nærri næg
nóttin hér án fata.
Fatapóker gengur glatt;
gaman er að vinna
& fylgjast með, hve fækkar hratt
fötum allra hinna.
Hinna æðri afla geng
ofurmenna í liði.
Gatslitnum ég g- á streng
í Gaza kem á friði.
Friður sé með öllum yður,
æ er það mín hinsta von.
Ekki þetta á, því miður,
Ástþór - við um - Magnússon.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Magnússon einn þekki mann
mjög svo oft er kátur,
Margar listir karlinn kann
kringum rolluskjátur .
[ ATH ! ]
Þetta er þvímiður ógilt hjá þér, lappi sæll... nema þú lappir svolítið uppá fyrripartinn !
- m/vinsemd - z n ó j -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þakka ábendinguna.
með vinarkveðju!
Lappi.
Maggnúsarsoninn þekki þann
þægur mjög svo kátur
Margar listir karlinn kann
kringum rolluskjátur .
skjátur kallast skepnur þær
sem skjótast út um heiðar
um vetur geymir bóndabær
svo bútast þær í sneiðar.
Sneið af brauði snæddi ég,
snjáða, nokkuð harða.
Hún var bara bærileg
á brauðheimsmælikvarða.
Brauðheimsmælikvarða kvað
kerling góð að norðan,
hangiðlæri spónn og spað
spændi hringaskorðan.
Hringaskorðan hressa Ýr
fékk hrós að loknum mökum.
Og sjálfur allur eins og nýr
af einmitt þessum sökum.
Sökum ekki maður minn
margs þarf hér að gæta,
einn samt óðar fantinn finn
fuglinn er Villi spæta.
Spæta ein mjög spekingsleg
spurði aðra minni.
Hefur þú séð herfileg
hár á bringu þinni?
Þinni á bringu er loddan ljót
loðin eins og nasi
Hér má gera bragar bót
brennana með gasi. ------------------------------..
Gas er mikið gæðastöff,
GAZ er rússajeppi.
Að öskra „GAS“ er geðveikt töff,
að gasvímu ég keppi.
[/b][/i]
Keppir að mörgu maðurinn
magnast hugar liðið
Þegar vinstri vaðurinn
veður yfir sviðið.
Sviðið það er baðað birtu
berrassaður um það geng
Bara'að ég hefði bláa skirtu
og bleikdoppóttan G-strengs-þveng.
Þvengsins strenginn hugprúð hnítti
hnút og slaufu líka brá,
prúð í fasi Snjólfi snítti
snögg var þessi hringagná.
Hringagná steig Hrunadans,
hristi sig og skók.
Munar hal í meyjafans
og marijúanasmók.
Smókinn fúlra eiturs efna
ennþá margir nota.
Dauða vofa haturs hefna
hnefun æstum ota