Skáldið lélegt skal ég vera
skelfileg er yrking mín.
Ég skal reina gustuk gera
góð eru alflest ljóðin þín.
-------------------------------------
Reinum að vanda vísnasmíð
vinirnir mínir kæru,.
Reinum að vanda vísnasmíð
vinirnir mínir kæru,.
Úr glerhúsinu grjótahríð
gusast í sauðagæru.
Um hátíðarnar Fimblufamb
frábær skemmtun reyndist.
Lappi var u.þ.b. 10 klukkutímum of seinn og hljóp þar með yfir Hrana (vissulega var botninn hans Hrana slæmur og þjáður af alrími, en ekki nógu rangur til að verðskulda yfirhopp).
Óðamála ofsalega
og vill vera Sívertsen
Fögru brjósti færir trega
fráleitt bull og ónýt gen.
---
Um hátíðarnar Fimbulfamb
frábær skemmtun reyndist.
Orðið sílaþröskuþramb
þýðir bílaflöskudramb.
---
Jólin búin. Janúar
étur afgangana.
Jólin búin. Janúar
étur afgangana.
Ef þú skoðar Anúar
þú ekkert þarft að plana.
Rímið strembið reyndist nú
rusl ég kembdi úr orðabók.
Rímið strembið reynist nú
rusl ég kembdi úr orðabók.
Búinn er að tapa trú
trítla um í prjónabrók.
---------------------------------------
Árið bara byrjar vel
blíðu veður úti er.
Árið bara byrjar vel
blíðu veður úti er
Á uppboði ég allt mitt sel
enda´ í klaustri, munkur sver.
Ljúga þeir enn þöngulhausar
þetta gengur ekki.
Ljúga enn þeir þöngulhausar
þetta gengur ekki.
Sama hvernig Ranka rausar
þeir ræna og míga upp við bekki.
------------------------------------------
Hvín og glampar í lofti ljós
löng af verður rákin.
"Hvín og glampar í lofti ljós
löng af verður rákin."
þar lortur bærðist - líkt og rós
ljót var páfaskákin.
Miðlungshægðir hafa lágt
hljómþíðar og slakar.
Miðlungshægðir hafa lágt
hljómþíðar og slakar.
þykir mörgum þó um bágt
þegar skitu bakar.
sauryrkingar iðka hér
aukasjálfin slyngu.
Miðlungshægðir hafa lágt
hljómþíðar og slakar.
Lóa á þó löngum bágt
ef loft í þörmum brakar.
Þunnur oft er þrettándinn
og þreyta fylgir honum.
Þunnur oft er þrettándinn
og þreyta fylgir honum.
Þá byrtist týndi tindátinn
og trúin á landsinssonum.
--------------------------------------
Sauryrkingar iðka hér
aulaskáldin slingu.
Gamli Jón í fjósið fer
fær hann það hjá Ingu?
---------------------------------
Sagt er að trúin flytji fjöll,
fögur er Barmahlíðin.
Sagt er að trúin flytji fjöll,
fögur er Barmahlíðin.
Í börmum hlíðar búa tröll.
Bæbæ, nú er sagan öll.
---
Gaman er að glamra á
gítar seint á kvöldin
Gaman er að glamra á
gítar seint á kvöldin.
Ganga svo á góða krá
gleðin tekur völdin.
Fyllum glösinn félagar
fagurt spilar Pói.
Fyllum glösin félagar
fagurt spilar Pói.
Lúnar plötur lélegar,
læra gleiður spói.
---------------------------------
Horfi yfir byggðu bólin
bændur una sínum hag.
Horfi yfir byggðu bólin
bændur una sínum hag.
Stelputuðran styttir kjólinn,
stefnir allt í góðan dag.
Það er hæð yfir Fróni og fagurt í dag
og fráleitt að liggja í dróma.
Það er hæð yfir Fróni og fagurt í dag
og fráleitt að liggja í dróma.
Öldungis gengur nú allt mér í hag
eflaust ber það líka á góma
Frosthörkur miklar fíla ég best
fannfergi mikið og byl
Frosthörkur miklar fíla ég best
fannfergi mikið og byl
og froststorm sem aldregi fyrr hefur sést
svo fjúki allt andskotans til.
---
Ég sakna sólarinnar
með sína björtu geisla.
Ég sakna sólarinnar
með sína björtu geisla.
Hún svæfla sálarinnar
sérhverja kann að beisla.
Erfðaprinsinn arkar nú
um eyðimerkursali.