Yfir köldu öli
einn um nótt ég sit.
Bölva heimsins böli
& brenni gömul rit.
---------------------------------
Týndan græt ég tíma;
tárin væta blað
Týndan græt ég tíma;
tárin væta blað,
hryggur má ég híma
hér á þessum stað.
Flest sem kætti forðum
fokið er á burt
Flest sem kætti forðum
fokið er á burt
Skotist allt úr skorðum -
skrattinn má vita hvurt.
---
Hérna færðu fátækan
fyrripart að botna.
Hérna færðu fátækan
fyrripart að botna.
Þann seinni furðu ráðríkan
og rottu niður brotna.
--------------------------------------
Fyrri part ér pára hér
pratinn botn skal vera.
Hérna færðu fátækan
fyrripart að botna.
Þefinn finn ég þrá-stækan
þegar líkin rotna.
---------------------------------
Áfram haldið ennþá skal
yrkingum á þræði
Áfram haldið ennþá skal
yrkingum á þræði.
Orða skal þó vanda val
svo vísan betur flæði.
Úti fellur ofan snær,
inni er súldarveður.
Úti fellur ofan snær,
inni er súldarveður.
Það var alveg eins í gær,
ekkert mann hér gleður.
Núna varpa enginn á
eggjum, grjót er betra.
Núna varpa enginn á
eggjum, grjót er betra.
Best ef drifið fólin fá
fleiri tugi metra.
Út með Sollu, út með Geir,
Árna Matt og Bjögga.
Út með Sollu, út með Geir,
Árna Matt og Bjögga.
Orða þetta aðeins þeir,
sem aldrei kjósa Íhald meir.
Næturórar nokkuð mig,
neðanverðann kvelja.
----------------------------------------------------------------
[ ATH ! ]
Hér vottar fyrir auka-stuðlun í botninum (sem aldrei kjósa Íhald meir. )
- m/vinsemd - z n ó j -
Út með Sollu, út með Geir,
Árna Matt og Bjögga.
Látum þetta lið ei meir
landsmenn alla bögga.
- - -
Næturórar nokkuð mig
neðanverðan kvelja.
Skyldi engin alla sig
ókeypis nú selja?
---------------------------------
Jólasveinninn Stekkjastaur
er störfum hlaðinn núna
Jólasveinninn Stekkjastaur
er störfum hlaðinn núna
meðan kátur Giljagaur
giljar bóndans frúna.
Alltaf minnir Leppalúði
leiðan mig á Hinrik prins
Alltaf minnir Leppalúði
leiðan mig á Hinrik prins.
Báðir einsog skarn á skrúði;
skrípi meðal aðalsins.
---------------------------------
Ekkert sniðugt yrkja kann;
er þá mál að linni
Ekkert sniðugt yrkja kann;
er þá mál að linni
Ekkert betra ég nú fann
orð í mínu sinni.
Fljúga vil um fjöllin há
og fugla himins kanna
Fljúga vil um fjöllin há
og fugla himins kanna
Albatros og erni þá
ég ætla sko að manna
Yfir heitum sólarsand
seint um kvöld ég breima
Yfir heitum sólarsand
seint um kvöld ég breima.
Sé ég hvergi Suðurland
sem ég gleymdi heima.
Kalt er úti, kæri fugl
komdu hérna í skjólið inn.
Yfir heitum sólarsand
seint um kvöld ég breima.
Senn er horfið Swasiland,
þar sem ég átti heima.
Kalt er úti, kæri fugl
komdu hérna í skjólið inn.
Elsku besti, ekkert rugl,
ofninn bíður vinurinn.
Úti geng ég úlpulaus,
einn í skafrenningi.
Kalt er úti, kæri fugl
komdu hérna í skjólið inn.
- Ekkert svona ansans rugl,
þú ætlar að éta skrokkinn minn!
---
Úti geng ég úlpulaus,
einn í skafrenningi.
Enga sé ég húfu á haus,
hef ég týnt vetlingi.
---
Einu sinni átti' ég hund
ofurlítið skrítinn.
Einu sinni átti ég hund
ofur lítið skrítinn.
Svartan kút með létta lund
loðinn talsvert ýtinn.
-------------------------------
Ég á líka Kína kött
kostulega feiminn.