Ég var að átta mig á því að það er mjög gott að fara út að skokka smá annað slagið.
Eyrnapinnar!
Þeir eru ekki hannaðir fyrir eina manneskju!
Þetta eru einhverskonar samtvinnunarpípur. Ég mun ekki hætta fyrr en ég hef náð að sameina 201 manneskju í einni rísastórri eyrnapinnakeðju! - í kringum alþingishúsið
Verst hvað fólk er almennt með breiðar axlir. Það gerir þessa eyrnapinnakeðju svo miklu erfiðari, nema fólk standi og snúi höfðinu til hliðar.
En þá er ég hrædd um að það þurfi fleiri en 201 í kringum alþingishúsið ...
Að ekki sé minnst á að einungis væri rúm fyrir tvo eineyrunga í keðjunni. Eyrnapinnar eru einmitt dæmi um þá fádæma grimmd sem eineyrungum er sýnd allsstaðar í samfélaginu. Þetta tekur mig sárt Texi, satt best að segja hélt ég að þú hefðir annan mann að geyma. Fyllir hvarma, klemmir varir og snýtir sér
Ég var að átta mig á að ég á ekki nóg af væminni tónlist.
Að klukkan er að verða þrjú.. og það fer að koma svefntími.. Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ég var að átta mig á því hvað sumt fólk er furðulegt og telur sumt vera fréttnæmt sem er það í raun ekki http://www.dv.is/sed-og-heyrt/2008/11/27/prinsinn-pissar/
Samt eitt fyndið þarna.. Lostabjúga... HAHA Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Annað sem mér finnst fyndið er að hann er í Afganistan, væntanlega sem hermaður, væntanlega þá í tengslum við stríð einhverskonar... Hvað í fjáranum er hann þá að gera við að dunda sér í pólóleik?
ég var að átta mig á því rétt í þessu að tíminn líður . Elsku strákurinn minn hann Jónas er ekki lengur sætt lítið ungabarn
sem ég einsamall hef fætt og klætt . hann er orðin bólugrafinn ófríður táníngur . Hann er að vísu enþá dásamlega góður og fínn
drengur Kæru vinir ítið endlega á takkan því hann fær stig fyrir hverja sem íta á hann og getur unnið eithvað eða þanniglagað
http://www.playahead.se/ztv/ztv_video.aspx?videoid=4904f570-4565-4ecd-8314-ab23693b9396
Hvaða, hann er ekkert ófríður. Ekki miðað við táninga.
Annað sem mér finnst fyndið er að hann er í Afganistan, væntanlega sem hermaður, væntanlega þá í tengslum við stríð einhverskonar... Hvað í fjáranum er hann þá að gera við að dunda sér í pólóleik?
Þetta er rétta viðhorfið! Burtu með alla dægradvöl og skemtan fyrir hermennina! Því minni afslöppun því lengra getum við rekið þá frá eðlilegri hugsun og sálarheilbrigði. Það gerir þá bara að betri hermönnum! Breytir þeim í morðvélar!
Ég var að átta mig á því að ég hef í raun ekki mikið að segja.
Ég var að átta mig á því að ég þarf að fara að sofa snemma, helst fyrir klukkan tíu, til að vera sæmilega hress á daginn.
Flissar að Jarma
Nei ég átti nú meira svona við: Hversvegna er hann ekki bara heima hjá sér í pólóleik, í staðinn fyrir að hanga þarna í Afganistan, þykjast vera í stríði og eyða peningum skattborgara. (Því við vitum öll að hinn konunglegi arftaki er ekki settur í hættulegustu djobbin hvortsemer.)
En ég viðurkenni að þetta kom gjörsamlega öfugt út.
Ég var að átta mig á því að ég er alls ekki góður kvenmaður. Ég nenni aldrei að taka til. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég var að átta mig á því að ég ætti að vera löngu farinn að sofa.
Ég var loksins að átta mig á því að nú styttist til jóla.
Ég var að átta mig á því hvað frumuskipting er ótrúlega magnað fyrirbæri! Hvernig í ósköpunum gerist þetta allt saman? Hvaða efnaferli eru t.d. á bakvið það hvaða örpíplur toga systurlitningsþræðina til sín og hvaða örpíplur ýta frumunni í sundur? Hvernig er því stjórnað hvenær frymisgrindin byrjar að draga miðju frumunnar saman til að deila umfryminu í tvennt? Hvenær ákveður kjarnahimnan að endurskipuleggja sig og umlykja tvö ný sett af litningum, og búa þar með til tvo aðskilda frumukjarna?
Ég vil vita þetta allt!!
Já þetta er rosalega merkilegt fyrirbæri. Ljómar upp