Kaffi, te og koníak
hvítlauksrif og hunang
eflaust lækna heimsúrhrak
sem hefði betur vermt eitt lak.
Fjórðung þjóðar fékk víst dje
í fylgiskönnuninni.
Fjjórðung þjóðar fékk víst dje
í fylgiskönnuninni.
Kjósum núna er fundið fé
í framsóknarmadömunni.
----------------------------------
Jólin nálgast friður fæst
fögnum ljóssins tíðum.
Jólin nálgast friður fæst
fögnum ljóssins tíðum.
Ljós og kransar - hvað er næst?
Kannski dísus fokking kræst? Blótar herfilega og rífur hár sitt og öskrar djúpri, drungalegri röddu að honum sé drullusama um ofstuðlunina í síðustu línu
---
Mér er sama um alla og allt,
ekkert skiptir máli.
Mér er sama um alla og allt
ekkert skiptir máli.
Nú er póa karli kalt
kveinar,allt í báli.
------------------------
Enn og aftur Dabbi drattast
dæmalaust er karlinn þver.
Enn og aftur Dabbi drattast
dæmalaust er karlinn þver.
Enn of aftur fólki fattast
keisarinn er rassa ber
Ofsa verður karlinn kátur
er kneyfað hefur öl
(Hér vantaf höfuðstaf í síðustu línu.)
Enn og aftur Dabbi drattast
dæmalaust er karlinn þver.
Þar sem fjallið þykir brattast
í þrjósku sinni ætíð fer.
Ofsa verður karlinn kátur
er kneyfað hefur öl
þó morgunn eftir magnast grátur
og mikil sálarkvöl.
Á J.S. Bach og Beethoven
er bærilegt að hlýða.
Á J.S. Bach og Beethoven
er bærilegt að hlýða.
Þú gefa mátt mér gúmskódren
er geng ég milli hríða.
Sérlega er sunnanáttin
svöl hér undir niðri.
Sérlega er sunnan áttin
svöl hér undir niðri.
golu lognið missir máttinn,
mætist vindur siðri.
Ofan koma kafaldssnær
krepju drullu ófærð.
Ofan koma kafaldssnær
krepju drullu ófærð.
Þá verður líka nóttin vær,
vill mig pía síðhærð.
Snotrar yrkir einhver hér
æði sannar vísur.
Ofan koma kafaldssnær
krepju drullu ófærð.
Þá nóttin líka verður vær,
vill mig pía síðhærð.
Snotrar yrkir einhver hér
æði sannar vísur.
Bráðum kóngur banna fer
bragarháttakrísur.
Þar sem stuðlar standa rétt
og stafur höfuðs keikur
(Hér vantar stuðul í þriðja braglið, "Þá líka nóttin verður vær" væri t.d. löglegt. Ég mæli með "Þá mun nóttin verða vær").
Þar sem stuðlar standa rétt
og stafur höfuðs keikur
reynist -gerðin ljóða- létt
líkt og gufureykur.
Hálf- er klukkan orðin -eitt
aldrei svefninn kemur.
Hálf er klukkan orðin eitt
aldrei svefnin kemur.
Tuldrar gamla Þura þreitt
og þrælfast karl sinn lemur.
-----------------------------------------
Guðni sér bregður bæjarleið
bjarga vill eigin skinni.
Guðni sér bregður bæjarleið
bjarga vill eigin skinni.
Til Kanaríeyja karlinn skreið,
með kreppuflugvélinni.
---
Jóla- núna nálgast -próf -
nú er vandi' á höndum.
Jóla- núna nálgast -próf -
nú er vandi' á höndum.
Kvíðvænlegt er kveðjuhóf
kvenfélags á Ströndum.
---------------------------------
Aldrei get ég ort hér neitt,
yfirleitt, af viti
Aldrei get ég ort hér neitt,
yfirleitt, af viti
Öllum hef ég brögðum beitt,
barist harðan, yfirleitt.
Bögusmíði er puð og púl með striti.
---
Einu sinni, að mig minnir,
átti ég lítinn hund
Einu sinni að mig minnir
átti ég litinn hund.
Hann með beini góðu gynnir
glaður ferð einn í sund.
----------------------------------
Kvutti litli í fílu fór
fór bara að sofa,
Kvutti litli í fýlu fór Leifist mér að breyta þessu í ýpsýlon?
fór bara að sofa,
fór á lappir fékk sér bjór
fæld'í burtu dofa
Opna hérna eina flösku
oní maga helli
Opna hérna eina flösku
oní maga helli.
Nítján slíkum treð í tösku
og teyga aðra' hvelli.
Legg af stað í lautarferð
labba nokkra metra.