Þetta var í hrekkjavökuþætti, minnir mig.
Hátíðin hét ÖKTÖBËRFËST (a.m.k. var einhver slatti af ¨ fyrir ofan stafina í orðinu).
Rétturinn sem var á boðstólum hét Uterbraten, en það var skiptineminn Uter sem hvarf.
Rétt er það svo langt sem það nær.
Reyndar voru tvípunktarnir (sem heita Umlaut á þýðversku) yfir k-inu, seinna o-inu, báðum e-unum og t-inu í lokin (nei, ég mundi þetta ekki sjálfur, heldur kíkti á netið). Það er hins vegar ómögulegt að skrifa á venjulegu lyklaborði svo ég læt það gott heita.
Ein auðveld:
Hver var skipaður lögreglustjóri í Springfield þegar áfengi var bannað í borginni?
Lási Lögga! Línbergur lestu einkapóstinn þinn!
Rex Banner.
Hvað heitir kötturinn hans Ralphs?
Það man ég ekki, en ég man þegar Ralph sagði Lísu frá því að andardráttur kattarins lyktaði einsog kattamatur.
Glottir eins og fífl
Sem þrengir hringinn óneitanlega. Finndu nú hæfilega Ralph-lega þýðingu á "Hanska" og þá færðu verðlaun.
Jæja Tina, er nokkuð vit í því að halda þssum leik lengur í heljargreipum vafans ?
Þetta er pottþétt rétt hjá Ríkisarfanum. Vill hann ekki bara koma með nýja spurningu?
Kikvendið heitir reyndar Mittens, en þetta hlýtur að teljast innan eðlilegra skekkjumarka. Skjóttu Arfi, annars gæti ég þurft að fara að gera e-ð gáfulegt.
Ég þakka. Í a.m.k einum þætti fer Simpson fjölsyldan til Japans, klósettið á hótelinu mælir með veitinga stað sem heitir America Town og öll borðin á staðnum eru í laginu einsog eitt fylki í Bandaríkunum, við hvaða fylki fær Simpson fjölskydan sæti ?