Aldrei fer ég á þetta Internet til að nota Gestapó. Ég fer bara á skrifstofuna hjá Baggalúti og skrifa beint á serverinn. Enter er mjög illa við þetta en vill ómögulega að ég birti af honum tilteknar ljósmyndir þannig að þetta hefur orðið að samkomulagi með okkur.
Ljósmyndir segirðu... Gramsar í gömlum albúmum Ég luma nú á nokkrum ljósmyndum af ónefndum ritstjórnarmeðlimum, sem eftilvill hafa takmarkaðan áhuga á að þær birtist opinberlega...
Starir þegjandi út í loftið
-
Sú var tíð að tónlistarmenn gáfu tónlist sína út á vinyl- eða geislaplötum sem voru handbærar og í föstu formi. Í þá daga voru til plötusafnarar, sem sönkuðu að sér þessum gripum og bjuggu sér til myndartónlistarsöfn. Á okkar dögum eru þessir menn úreltir og finnist þeir enn er ekki litið á þá sem nútímafólk heldur fornaldarmenn. Á þann, sem gerir sér ferð í hljómplötuverslun og festir kaup á tónlist, er litið sem heimskan, enda hefði hann geta sparað sér þúsundkallinn sinn og halað efninu niður í gegnum Internetið. Þetta finnst mér miður.
Já, ég hef verið kallaður margt um dagana en aldrei eðlilegur. Tónlistarárátta mín var t.a.m. einn eitt af því sem að setti mig á skjön við flesta jafnaldra minna. Á meðan þeir voru úti í sjoppu að blása jórturleður ellegar inni í einhverju kofaskræfli að sniffa lím (var reyndar athyglisvert þegar þeir reyndu að sameina þessi hugðarefni) þá lá ég inni í herbergi með heyrnatól á höfðinu, LP vinyllinn snerist og ég stúderaði síðasta plötuumslag á meðan ég hlýddi á gripinn. Það fóru heilu dagarnir í að grafa í gegn um safnið hjá Valda í Safnarabúðinni og kom maður stundum grátklökkur þaðan út, með einhvern dýrgripinn í höndunum sem maður hafði lengi sóst eftir.
Jó Pó, mikið innilega er ég sammála þér í þessu tilliti. Nú til dags, þá verður maður pirraður ef það tekur mann lengur en 5 - 10 mínútur að finna einhverja plötu. Þetta tekur vissulega sjarmann af þessu.
En vertu hjartanlega velkominn.
Kærar þakkir, Rattati.
Ég hef alltaf talið þá, sem kunna vel að meta góða tónlist og njóta gildis hennar og alls þess sem felst í eintaki af frábærri plötu, hafa eitthvað fram yfir hina, sem sniffa lím.
Eftir að ég náði ákveðnum aldri hætti ég að hlusta á þessa svokölluðu tónlist. Ég hætti að kaupa plötur þegar þær ættu að virka á plötuspilarann minn. Ég sakna þessa gargans sannast sagna ekkert.
Kærar þakkir, Rattati.
Ég hef alltaf talið þá, sem kunna vel að meta góða tónlist og njóta gildis hennar og alls þess sem felst í eintaki af frábærri plötu, hafa eitthvað fram yfir hina, sem sniffa lím.
Leggst í gólfið, hamstola af hlátri Já, Pó minn, þú átt eftir að smellpassa inn í þennan hóp, ég hlakka til verð ég að segja. Enn og aftur, vertu velkominn.