Innan skams mun ég leggjast upp í rúm og sofna, að því loknu mun ég snæða morgunverð fara út í vondaveðrið setjast undir stýri og aka til Suðvesturshornsins þar sem að ég mun ef guð og góðir vegir lofa taka þátt í árshátíðinni okkar annað kvöld.
Af þessum sökum mun ég liklega ekki verða innskráður hér fyrr en á sunnudagskvöld í fyrsta lagi.
það kvelur mig samt ekki kvíðinn fyrir því að komast ekki inn á gestapó enda er það tilhlökkunin ein sem á mig núna.
Sjáumst annað kvöld og hafið það gott þangað til.
Já, það verður sannarlega gaman að hittast. Ljómar upp xT
Kemur Garbo ekki örugglega...?
Góða nótt og góða ferð, sjáumst á morgun!! Ljómar upp
Kemur Garbo ekki örugglega...?
Jú hún kemur svo sannarlega.
Góða nótt og góða ferð ! Ljómar upp
Vonandi mundi hann eftir að taka með sér keðjur...
Ef Uppi getur ekki keyrt í þessari færð þá held ég að enginn geti það...
Gó Uppi!
Vonar að Uppi hafi ekki gleymt hattinum
Góða ferð, og góða skemmtun í kvöld! (Sem er sjálfgefið, þar eð ég verð á staðnum… Glottir eins og fífl)
Undirbýr upphaf tilhlökkunarferlis, vottuðu skv. staðli ISO 32560a
Skemmtið ykkur vel, segi ég nú bara....Sest grátklökkur út í horn
Treður sér í hornið hjá Rattatta og hágrætur með honum
sér að hornið er troðfullt og strunsar af sviði