Í skóla ei ég skemmti mér
því sköss að kenna eru
mér um allt sem miður fer
og meira í þá veru.
Sem íslendingur er ég þó
orðinn slíku vanur.
Sem íslendingur er ég þó
orðinn slíku vanur.
Í ljótum andarunga bjó
undurfagur svanur.
Nóttin kemur furðufljótt
floginn burt er dagur.
Nóttin kemur furðufljótt
floginn burt er dagur.
Enn hann líður allt of fljótt
örþunnur og magur.
Tíminn líður, tiplar hjá
og togar alltaf harðar.
Tíminn líður,tiplar hjá
og togar alltaf hraðar.
Allir landsins þegnar þrá
þögnina sem laðar
--------------------------------
Noðan blástur kulda kast
kólgu bakkar víða.
Noðan blástur kulda kast
kólgu bakkar víða.
Er þú lítill ennþá varst
oft þú fékkst að (sk)ríða.
---
Margir byrja á www,
vefirnir á neti
Margir byrja á www,
vefirnir á neti
Á sumum hef ég stímt í straff
(með strípli og hórdómsketi).
Pen. er síða – punktur is
Paradísarhjóna.
Pen. er síða – punktur is
Paradísarhjóna.
Netið mörgum misyndis-
mönnum virðist þjóna.
Til helgarinnar hlakka ég
hleypt mun tappa úr flösku.
Til helgarinnar hlakka ég,
hleypt mun tappa úr flösku.
Við Molotov þá makka ég,
margt skal verða' að ösku.
Allar mun ég brenna brýr
að baki næstu daga.
Allar mun ég brenna brýr
að baki næstu daga.
Eldinn ber'að Alþingsfýr
og endar þannig saga.
Á krepputal og karlavæl
konur þurf'að hlusta
(Úff hvað er langt síðan ég hef barið saman ferskeytlu! Dálítið ryðguð.)
Á krepputal og karlavæl
konur þurf'að hlusta
Stundum minna þær á þræl,
sem þvær með klósettbursta.
---
Svona er lífið, sagði Pó
og settist niður á stólinn
Svona er lífið,sagði Pó
og settist niður á stólinn.
Í útrás fer með skakka skó
skröltandi á Arnarhólinn.
-------------------------------------
Eftir kverju gengur Geir
Guðna eða Sollu?
Eftir hverjum gengur Geir,
Guðna eða Sollu?
Er það Guðjón (eða þeir)?
Ætlar hann í Kollu?
Ætlum við í ESB?
Ætlum við að semja?
Ætlum við í ESB?
Ætlum við að semja?
Ef við þaðan fáum fé
fljótt,þá skulum temja.
_______________________
Enga þolirTobba töf
tíman þarfað npta.
Enga þolir Tobba töf
tímann þarf að nýta.
Að sjái æ til gjalda gjöf
er gamalkunnug mýta.
Snóker þykir sniðugt sport
og snilligáfu þarfnast.
,
Snóker þykir snildar sport
og snilligáfu þarfnast.
Ekki nota kredit kort
körlum meður farnast.
--------------------------------
Landinn býr við skammar skort
skötu fær að éta.
Landinn býr við skammar skort
skötu fær að éta.
Gott er þá að geta ort
um græðgina og Breta.
---
Helvíti er Hannes Smár
og heldur bjánalegur.
Helvíti er Hannes smár
og heldur bjánalegur.
Líka ósköp guggin grár
grautarhausinn tregur.
---------------------------------
Oft ég gleymi stund og stað
störfum hlaðinn oft á tíðum.
Oft ég gleymi stund og stað
störfum hlaðinn oft og tíðum.
Klukkan fimm á fögrum grað-
folum út í buskann ríðum.
---
Í dimmu rúmi um dimma nátt
dó hann Sólon forðum