Mús við múrinn læðist
músagildru hjá
Blús í búri fæðist,
búsæld aldrei sá
Davíð át allt ofan í sig
ólgu fékk í magann
hmm
Ráðherrann í ristil fékk
rosalega kveisu
hálvitinn enþá hékk,
í handónýtri peysu.
Jæja, best að bjarga þræðinum þrátt fyrir þessar skyndilegu truflanir:
Ráðherrann í ristil fékk
rosalega kveisu
hálfa nótt á skálinni hékk
honum eigi til hneisu.
Kveldúlfur á hausinn fór
á aurinn var hvergi spar
Kveldúlfur á hausinn fór
á aurinn var hvergi spar
á endanum drakk hann klór
Kveldúlfur varð á því snar
Botninum náð:
gægist hér gaur um horn
gefur að líta á safnið
gægist hér gaur um horn
gefur að líta á safnið
kauðinn er kannski æva forn
kannast ég við nafnið.
here goes,
Hastar Davíð Halldór á,
heyrir hann eitthvað illa?
Hastar Davíð Halldór á,
heyrir hann eitthvað illa?
Lætur Dóri lúmskur þá
lyfjaskammtinn fylla.
Sprakk nú görnin, splundraðist
sprænir karlinn blóði?
Sprakk nú görnin, splundraðist
sprænir karlinn blóði?
einhverntíman er allt fyrst
elsku vinurinn góði.
sparaðu heldur skinsokkinn
sjúkur hann getur orðið
[skaddaðu aldrei] skinsokkinn
[skemmdur] hann getur orðið
þjakirðu ætíð þinn skrokkinn
þú getur ekkert sorðið
Vondur ertu Vamban minn,
veikan garpinn níðir
sp-sk-s(j) geta víst ekki stuðlað saman, sjá um stuðla:
http://rimur.is/?i=73
http://www.heimskringla.net/bragur/bragur/b2.asp
Vondur ertu Vamban minn,
veikan garpinn níðir.
Heyrðu hvutti hundurinn
Heimskum manni hlýðir.
Nú er komið babb í bátinn.
Bobby Fisher handtekinn.
Nú er komið babb í bátinn.
Bobby Fisher handtekinn.
í japönsku fangelsi ei mörg 'mátin'
mun ei tefldur drekinn
Uss, leirburður er þetta. Til skýringar má geta þess að 'drekinn' er nafn á þekktri byrjun í skák
Páfinn var öflugur skákmaður á sínum yngri árum þ.a. eftirfarandi á vel við:
Áður ýmsir merkir menn
máttu tefla páfann við
Áður ýmsir merkir menn
máttu tefla páfann við
Grámyglaða gamalmenn
grænn eins og úldið svið
Barbapabbi berrassaður
brjóstumkennanlegur maður
Áður ýmsir merkir menn
máttu tefla páfann við
ég puðra út peði enn
passa mig af gömlum sið
Barbapabbi berrassaður
brjóstumkennanlegur maður
við þetta gerðist maður graður
grauthausinn er timbraður
holgóma er hrókur þinn
hæfilega máttlaus
holgóma er hrókur þinn
hæfilega máttlaus
forkunnar fögur drottningin
en forsetafrúna kaus
Líklega illskiljanlegt þeim er eigi þekkja ráðherra- og embættismannalista Baggalútíu, sjá http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=1459&start=0
Nú er á Lútnum fátt fólk
fúlir erum vér því
Áfengi er alltaf gott
einkum handa börnum
sem að ráði’og rænu brott
renna’í drykkjutörnum
Bakkus lífs þíns bjarta lind
borgið hefur mörgum
Bakkus lífs þíns bjarta lind
borgið hefur mörgum
Dettum í það, djöfuls synd
í drykkjulátum görgum
Brennivín er barnanna
besti og mesti vinur
Brennivín er barnanna
besti og mesti vinur
öpum dæmi arnanna
ákavítið drynur
Flaskan segir sjáðu mig ,
svona skaltu reyna....
Flaskan segir sjáðu mig
svona skaltu reyna:
Uppá kemstu æðra stig
með ákavítið hreina.
Kemstu fljótt á fyllra stig
ef flæðir vökvinn uppí þig.
Kemstu fljótt á fyllra stig
ef flæðir vökvinn uppí þig.
Á skíðum fara skaltu svig.
Skaðræðiskuldinn bítur mig.
Davíð liggur fölur, fár.
Fékk nú mótbyr hvassan.