Þegar örbylgjuofninn er orðinn fitugur og ógeðslegur að innan er frábært að setja inn í hann skál með vatni og nokkrum sítrónusneiðum og stilla á 3-5 mínútur á fullum styrk. Þegar tíminn er búinn er þetta látið standa inni í ofninum í 1-2 mínútur, þá er ofninn opnaður og fitan og ógeðið rennur af með eldhúsbréfi eða einhvurju slíku.
Gott húsráð er að búa ekki á Íslandi.
Einhverstaðar las ég að ef það er táfýla af skónum ykkar er hægt að setja appelsínubörk í skóna yfir nótt og þá er lyktin farin morguninn eftir.
Ég tek það þó fram að ég hef ekki prófað þetta sjálf - augljóslega - þar sem ég geng ekki í skóm.
Ég hef heyrt að ef menn setja routerinn sinn ofarlega þá virki netið betur, rafsegulbylgjurnar eigi að leyta niður, en ég held að þetta sé tóm della.
Ég er meira að segja alveg handviss um að þetta sé tóm della.
Hana nú.
Tja, ef einhver vill gera grín að mér af því að ég kann ekki að skrifa "leyta" rétt, þá er rétti tímin núna
Bendir á Pseudo og hlær
Tja, það er nú hann tíminn.
Bendir meira og hlær meira
Hættir skyndilega
Á hann ekki að vera í nýliðahliðinu þessi?
Hvar eru Kargur og Hvæsi?
Ég hef heyrt að ef menn setja routerinn sinn ofarlega þá virki netið betur, rafsegulbylgjurnar eigi að leyta niður, en ég held að þetta sé tóm della.
Ég er meira að segja alveg handviss um að þetta sé tóm della.
Hana nú.
Það virkar betur að hafa hann ofar, því flest húsgöng standa á gólfinu. Ef ráterinn er fyrir ofann húsgögnin þá blokkera þau ekki sendinguna. Rökrétt. Ekki satt?
(Hélt nú að framsóknarmenn ættu að vita þetta.)
Svo er gott að hafa viftu í gangi sem snýr að routernum, auðveldar honum að ná góðri tengingu.

Ekki gleyma að einnota plastglas, hvítt að sjálfsögðu, fullt af sítrónutei, staðsett norðan við ráterinn, hefur gríðarlega góð áhrif á tenginguna.
Fer og kaupir sítrónute
Fjandinn. Við vorum alltaf með kamillute! Fjárans klúður.
Ég hef alltaf fórnað tveim hreinum meyjum á ráternum einusinni í viku og hef lítil vandræði haft með tenginguna síðan... eina vandamálið er hvað erfitt er að finna hreinar baunameyjar...Starir þegjandi út í loftið
Þegar örbylgjuofninn er orðinn fitugur og ógeðslegur að innan er frábært að setja inn í hann skál með vatni og nokkrum sítrónusneiðum og stilla á 3-5 mínútur á fullum styrk. Þegar tíminn er búinn er þetta látið standa inni í ofninum í 1-2 mínútur, þá er ofninn opnaður og fitan og ógeðið rennur af með eldhúsbréfi eða einhvurju slíku.
Prófaði þetta einhvern tímann, fannst þetta nú ekki virka neitt sérstaklega...
Gott húsráð (eða nestisráð) þegar skyrs er neytt er að stinga ávallt gat á lokið með skaftinu á skeiðinni áður en opnað er, til að létta af þrýstingnum og koma í veg fyrir fruss.
Pseudo ráfar um, virðist eiga erfitt með að halda sér fyrir innan þetta undarlega hlið.
Ég hef heyrt að ef menn setja routerinn sinn ofarlega þá virki netið betur, rafsegulbylgjurnar eigi að leyta niður, en ég held að þetta sé tóm della.
Ég er meira að segja alveg handviss um að þetta sé tóm della.
Hana nú.
Það virkar betur að hafa hann ofar, því flest húsgöng standa á gólfinu. Ef ráterinn er fyrir ofann húsgögnin þá blokkera þau ekki sendinguna. Rökrétt. Ekki satt?
(Hélt nú að framsóknarmenn ættu að vita þetta.)
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Er bara verið að kalla mann framsóknarmann hér upp úr þurru, ég hef aldrei vitað annað eins...
Ég átti þetta nú ekki skilið.
Svo er gott að hafa viftu í gangi sem snýr að routernum, auðveldar honum að ná góðri tengingu.
Ekki gleyma að einnota plastglas, hvítt að sjálfsögðu, fullt af sítrónutei, staðsett norðan við ráterinn, hefur gríðarlega góð áhrif á tenginguna.
Það vita þó allir að þetta skilar engu nema glasið sé hvítt!