Þá hefst nýr spurningaleikur, nú um tónlist jazzíska.
Ég byrja með einni auðveldri til að koma okkur af stað:
Hver er píanóleikarinn á upphaflegri upptöku So What á Kind of Blue Miles Davis?
Ég set þennan leik á þetta svæði - að því er virðist - bara til að stríða Ívari.
Rétt! Þú ert greinilega sleipari í þessum leik en þeim klassíska...
(Pródúserar voru einhverjir sem ég þekki ekki. Gil Evans var hins vegar frægur útsetjari og útsetti t.d. Birth of the Cool - má vera að þú sért að hugsa um hann.)
Það er e.t.v. rétt að ég nefni að þessar litlu voicingar (þ.e. hvernig hann leggur upp hljómana) sem Bill leikur í upphafi So What eru með stærri áhrifavöldum á jazzpíanóleik síðustu aldar (þori ég að fullyrða). Þetta eru kallaðar So What voicingar og líklega má finna fáa jazzista sem ekki hafa troðið þeim ofan í sína verkfærakistu.
Það er ekkert gaman að lesa svona flott orð og skilja þau ekki. Er hægt að fá tóndæmi?
Fyrst Hakuchi er leiðindapúki sem nennir ekki að taka þátt kem ég með aðra:
Hver samdi húsganginn "Valse Hot"?
Þann húsgang spiluðum við einu sinni. Er það ekki Sonny Rollins?
Þann húsgang spiluðum við einu sinni. Er það ekki Sonny Rollins?
Hvaða við?
Nú, auðvitað þeir... þarna... þessir sem voru með hvurslags... og hann líka. Starir þegjandi út í loftið
Ekki var Ísak Dinesen í þeim hópi, "við" urðum hins vegar til í þeirri menntastofnun sem Grétar Væni var að ljúka við.
Ekki var Ísak Dinesen í þeim hópi, "við" urðum hins vegar til í þeirri menntastofnun sem Grétar Væni var að ljúka við.
Það hlýtur að hafa verið fyrsta leikskólahljómsveit landsins.
Ekki var Ísak Dinesen í þeim hópi, "við" urðum hins vegar til í þeirri menntastofnun sem Grétar Væni var að ljúka við.
Ég er ekki búinn með Hagaskóla.
Ekki var Ísak Dinesen í þeim hópi, "við" urðum hins vegar til í þeirri menntastofnun sem Grétar Væni var að ljúka við.
Ég er ekki búinn með Hagaskóla.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hver átti djass-diskó hittarann "Rockit"?