Rétt er það. Sjáum til hvort hann geti stafað nafnið mitt rétt. Annars verð ég að sækja hann og gera tilraunir á honum.
Skiptir um peru í yfirheirslulampa 4
Skrifaði hann ekki "Doggy" hérna einhversstaðar? Ég tók því sem hann væri að tala um þig.
Þakka þér fyrir að minna mig á það Vamban. Hann átti líklega við "Doggy stile" viðundrið at arna. Hreinsar skautin á rafmagnsstólnum Viltu hjálpa mér að handtaka ófétið svo við getum yfirheirt hann? Ekki legg ég í það að sækja hann einn, ef hann skildi vera eitthvað kynviltur greyið.
Mundar endaþarmsraspinn Ég held ég verði að fara í smiðjuna mína góðu á Árskógsströnd og klambra saman pintingartóli sérstaklega fyrir aflóa kynvilta tölvu. Hvað ætti það nú að vera?
Hmm? Kannski að setja hann í samband við gamla skáktölvu og vasareikni?
Landbúnaðarráðherra, hirðstjóri og yfirsmakkari, hártískumálafræðingur og ilmefnaséní.
Séntilfantur.
Séntilfantur!... Þú hefur margan starfan í Baggalútíu. En ég er að hugsa um að mæla með þér sem útfærsluspekúlant yfirheirsludeildar Ölís.
Ég þarf bara að bera það undir Mikla Hákon fyrst.
Hvað fær maður borgað fyrir slíkt? Byrjar að skrifa niður mörg núll
Ekki viss. Þarf sennilega að vera lengur í embætti til að hafa þetta á hreinu. Hugsanlega hef ég ekki leifi til að ráða í stöðuna. Eigum við ekki að bíða aðeins og sjá... Ræskir sig valdmannlega
Ráddu hann bara og láttu hann fá útgjaldareikning og bíl...
Mynd sem hérna var hefur verið eytt í sorpeyðingastöð Baggalútiu.
Eyjaskjeggur
Vér minnum á að "less is more".
Þó verður að viðurkennast að myndin er dásnotur. En í guðs bænum, hafið hemil á myndbirtingarhvötum ykkar!