Ég sé að þráður með þessu nafni er í fleiri en einni málstofu. Skellum inn einum enn. Nafnalistinn verður þó að vera í bundnu máli hér en það má gjarna vera vondur kveðskapur. Góður kveðskapur er líka leyfður.
Hér eru Garbó og Grétar ský
og Galdrameistarinn.
Setu-Natan sést þá í
sem og hvurslags minn.
Herbjörn gamli Hafralóns er hér á sveimi
en Hlebbi og Dula í hörku breimi.
.
(Dula, Galdrameistarinn, Garbo, Gretzky, Herbjörn Hafralóns, hlewagastiR, hvurslags, Z. Natan Ó. Jónatanz)
Herbjörn gamli Hafralóns er hér á sveimi
en Hlebbi og Dula í hörku breimi.
og Teri sæll í góðu geimi.
Gísli var hér, aukinheldur Eikog Helgi
eins má greina forna belgi
Enter, Herbjörn Hafralóns
& Helgi-Gísli-Eiki
eilífðar- til nánast -nóns
á neti iðka leiki.
Jóakim mín aðalönd
er inni 'á lútnum núna
Slæpist hér um Lopi lönd
ey lætur iljar fúna.
Nú er komin niðdimm nótt
nú er lítt af skopi
enda sefur Íslands drótt
utan Hlebbi og Lopi.
Einn hér situr syfjaður,
súr í haus, með vesen,
af kenjum er hann klyfjaður
karlinn hann Sívertsen.
Eykst á Lúti augnablik
andans þjúpi þroski.
Enda ekkert hálfkák, hik
heimskauta á froski.
[b][i]
, Hér er Lappi lautinant
lífsins anda dregur,.
læt hér mina píp'í pannt
partussluddalegur .