En getur þá einhver svarað því hér hvort einhver undirbúningsnefnd er að störfum?
Engin sem ég veit um - sem þýðir þá að það er alveg nánast örugglega engin slík að störfum.
Akkúrat.

Ég er allavega ekki í nefnd! Nýtur þess að sitja úti í horni og gera ekki neitt
Þarf ekki bara að stofna þráð undir þennan kexleik sem ríður hér rækjum um allt Gestapó?
Þetta var nú óþarfi Klórar sér í höfðinuBlótar herfilega og rífur hár sittStrunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Mér sýnist þetta nú bara vera eitthvað bölvað bull í honum Skabba ...
Eigum við ekki frekar að segja óskhyggja... hvernig væri að bera þetta plan undir Ritstjórn og Rýtingu? Er ekki Lystin nógu stór fyrir árshátíð annars?
Það þýðir ekki að hafa Sæmund vappandi kviknakinn um Gestapó.
En ég telst ekki nógu fróð um hvernig þessi leikur er.
Varðandi nefndina... ég legg til að Þarfagreinir þarfagreini vandan ögn... spurning hvort ekki er hægt að setja upp lista með þeim 100 sem mættu hvað mest á Gestapó síðasta vetur og velja random úr þeim hóp sirka 10... af þessum 10 ættu að vera allavega 5 sem hægt væri að neyða til að skipuleggja árshátíðina....
Vjer erum eigi fyllilega sáttir við skipan árshátíðarnefndar. Leggjum vjer til að í henni verði frekar Rimi D. Alw, Mófreður C. Mýrkjartans, Ira Murks, Sigfús og Ormlaug.
Ég krefst þess að Nestrevís Raví verði fenginn í stað Mófreðs því Mói er svo skelfilega leiðinlegur.
Og Þvottapoki Aðgangsharður verður formaður nefndarinnar.
Varðandi nefndina... ég legg til að Þarfagreinir þarfagreini vandan ögn... spurning hvort ekki er hægt að setja upp lista með þeim 100 sem mættu hvað mest á Gestapó síðasta vetur og velja random úr þeim hóp sirka 10... af þessum 10 ættu að vera allavega 5 sem hægt væri að neyða til að skipuleggja árshátíðina....
Það er ágæt hugmynd, svona ef maður vill forðast það að það sé alltaf sama fólkið í þessum nefndum.
Mér sýnist þetta nú bara vera eitthvað bölvað bull í honum Skabba ...
Eigum við ekki frekar að segja óskhyggja... hvernig væri að bera þetta plan undir Ritstjórn og Rýtingu? Er ekki Lystin nógu stór fyrir árshátíð annars?
Ég veit ekki hvort að Lystin er nægilega stór.
Í fyrra var árshátíðin haldin á Ásláki og heppnaðist vel. Eigandinn var mjög ánægður með þetta allt saman og vildi endilega fá okkur þangað aftur.
Annars er ég að sjálfsögðu opin fyrir öllum hugmyndum.
Hvað mættu margir í fyrra?
Úff ég man það ekki.. það var amk alveg slatti. Full rúta + fólk á einkabílum.
Kannski 40-50 manns.
Varðandi nefndina... ég legg til að Þarfagreinir þarfagreini vandan ögn... spurning hvort ekki er hægt að setja upp lista með þeim 100 sem mættu hvað mest á Gestapó síðasta vetur og velja random úr þeim hóp sirka 10... af þessum 10 ættu að vera allavega 5 sem hægt væri að neyða til að skipuleggja árshátíðina....
Ég er nottlega pottþétt ekki á topp 100. Er varla neitt hérna!
Svo hef ég tekið eftir að þú nefnir föstudaginn 31. október...
Af minni reynslu á hinum ýmsu hittingum, bæði árshátíðum, Þarfaþingum, Duludjömmum ofl. eru yfirleitt alltaf fleiri sem komast á laugardögum.
Já... dagsetningin og annað var bara grín til að hrista upp í liðinu, sjá hvort fólk væri virkilega alvara með þennan þráð...
Úff ég man það ekki.. það var amk alveg slatti. Full rúta + fólk á einkabílum.
Kannski 40-50 manns.
Ha, tók Glúmur stórfjölskylduna sína með sér?

Ég lét alla vega hristast.
Og þetta er klárlega orðinn alvöru þráður núna.
Setur upp skilti áletrað: Allt spaug bannað
Úff ég man það ekki.. það var amk alveg slatti. Full rúta + fólk á einkabílum.
Kannski 40-50 manns.
Ha, tók Glúmur stórfjölskylduna sína með sér?
Jájá. Langömmufrænkur og barnabarnabörn þeirra.